„Ákaflega hlýtt loft“ yfir landinu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. mars 2021 06:55 Hitaspákort Veðurstofunnar lítur sérstaklega vel út fyrir Austurland. Veðurstofa Íslands Það er ákaflega hlýtt loft yfir landinu nú og í nótt hefur verið allt að fimmtán stiga hiti í hnjúkaþey á Tröllaskaga og á Austfjörðum að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.
Þar kemur jafnframt fram að í dag sé útlit fyrir áframhaldandi hlýindi og svipað veður og var í gær. Spáð er suðvestanátt og súld eða rigningu á vestanverðu landinu og með suðurströndinni en bjartviðri norðaustantil. Þá er enn byljóttur vindur á norðanverðu Snæfellsnesi en það dregur smám saman úr honum þegar líður á morguninn. „Á morgun og á laugardag er veðrið í stórum dráttum svipað með suðvestanátt og úrkomu, en heldur kólnandi, einkum á norðvestanverðu landinu en lengst af þurrt norðautsantil. Á sunnudag gengur yfir landi alldjúp lægð með hvassviðri og talsverðri rigningu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu: Suðlæg átt, 5-10 m/s á Suðurlandi annars víða 8-15 m/s. Rigning eða súld með köflum, en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Fer að rigna á Norðvesturlandi í nótt. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast A-til. Vestan og suðvestan 5-13 á morgun. Stöku skúrir eða slydduél norðvestantil og kólnandi veður en áframhaldandi ringing sunnantil og síðar á Austfjörðum annað kvöld. Á föstudag: Suðvestan 8-13 m/s en 10-15 norðvestantil og við suðausturströndina. Rigning eða súld sunnan og vestanlands en skýjað með köflum norðan og austantil. Styttir upp vestantil síðdegis og lægir en fer að rigna á Austfjörðum. Hiti 4 til 9 stig en kólnar norðantil um kvöldið. Á laugardag (vorjafndægur): Vestlægar eða breytilegar áttir 5-13 m/s rigningu sunnan - og austanlands en slyddu til fjalla. Skýjað með köflum eða bjartiviðri í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 5 stig. Vaxandi sunnanátt vestast um kvöldið með talsverðri rigningu og hlýnandi veðri. Á sunnudag: Suðvestan hvassviðri og talverð rigning en úrkomulítið um landið austanvert. Hiti 2 til 7 stig. Vestlægari vindátt og skúrir eða él síðdegis og kólnandi, fyrst á vestantil á landinu en áfram þurrt að kalla austantil. Á mánudag: Minnkandi suðvestanátt með éljum, en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Hiti um og undir frostmarki.
Veður Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira