Tæp sextíu prósent andvíg núverandi kvótakerfi Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 1. apríl 2021 22:31 Tæp 60 prósent segjast andvíg kvótakerfinu í núverandi mynd en 17,1 prósent hlynnt því samkvæmt nýlegri könnun Maskínu. Vísir/Vilhelm Tæp 60 prósent Íslendinga eru andvíg núverandi kvótakerfi í sjávarútvegi. Afstaða almennings virðist ekki breytast mikið milli aldurshópa en töluverður munur er á afstöðu kvenna og karla til kvótakerfisins.
Þetta kemur fram í nýlegri könnun sem Maskína gerði fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar sem framkvæmd var um miðjan marsmánuð. Var þar meðal annars spurt út í afstöðu almennings til kvótakerfisins og eru mun fleiri andvígir núverandi kvótakerfi en eru hlynntir því. Alls tóku 752 þátt í könnuninni og 36 þeirra svöruðu ekki spurningu um afstöðu til kvótakerfis. Tæp 60 prósent eru andvíg núverandi kvótakerfi.Maskína 56,2 prósent sögðust annað hvort mjög andvíg eða fremur andvíg kvótakerfinu, 25,5 prósent fremur andvíg og 30,7 prósent mjög andvíg. Þá sögðust 26,7 prósent hvorki andvíg né hlynnt því, 12,1 prósent fremur hlynnt og 5,0 prósent mjög hlynnt núverandi kvótakerfi. Afstaðan virðist ekki hafa breyst mikið milli aldurshópa en nokkur munur var á afstöðu karla og kvenna til kerfisins. 8,6 prósent karla sögðust mjög hlynnt kerfinu, 16,9 prósent fremur hlynnt og 16,5 prósent hvorki né. Aðeins 1 prósent kvenna sagðist mjög hlynnt kerfinu, 6,5 prósent fremur hlynnt en 38,3 prósent hvorki né. Samkvæmt könnun Maskínu er ekki mikill munur á afstöðu fólks til kvótakerfisins eftir aldurshópum.Maskína Þá sögðust 25,0 prósent karla fremur andvíg kvótakerfinu og 26,2 prósent kvenna en 33,1 prósent karla mjög andvíg kvótakerfinu og 28,0 prósent kvenna. Mun fleiri konur virðast því ekki taka afstöðu til kerfisins en karlar. Þá breyttist afstaða hvorki mikið eftir aldri né búsetu. Þó virtist fleira yngra fólk, á aldrinum 18-29 ára ekki hafa myndað sér afstöðu í málinu ,eða 42,3 prósent á móti 14,1 prósenti fólks 60 ára og eldri.
Sjávarútvegur Skoðanakannanir Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira