Fín veiði í Þingvallavatni Karl Lúðvíksson skrifar 4. apríl 2021 09:00 Sú breyting varð á veiðum við Þingvallavatn á þessu tímabili að heimilt er að veiða á urriðasvæðunum frá og með 1. apríl og það er greinilegt að það er bara af hinu góða.
Sú breyting varð á veiðum við Þingvallavatn á þessu tímabili að heimilt er að veiða á urriðasvæðunum frá og með 1. apríl og það er greinilegt að það er bara af hinu góða. Eitt af þeim svæðum sem opnaði með glæsibrag er Kárastaðir en þar var mikið líf og töluverð veiði. Þar á meðal kom einn tröllvaxinn urriði á land hjá Árna Kristni Skúlasyni en eins og sést á myndinni er þetta líklega urriði sem er einhvers staðar á bilinu 90-100 sm og þykkur eftir því. Við höfum eins frétt að ION svæðið hafi verið að gefa fantaveiði en heyrst hafa tölur uppá 60 fiska á fyrsta degi en veiðin var jöfnun höndum góð í Þorsteinsvík sem og við Ölfusvatnsárós. Ekki hefur heyrst neitt af veiði frá Svörtuklettum eða öðrum svæðum en það má engu að síður reikna með því að ef einhver kíkir á Svörtukletta næstu daga að það gæti borið vel í veiði því þetta svæði gefur að öllu jöfnu flotta urriða í apríl og er veiðin að sama skapi best þegar það hefur verið hvílt, þá kemur urriðinn oft ansi nálægt landi.
Stangveiði Mest lesið Gæti stefnt í mjög gott sumar í Eystri Rangá Veiði Þingvallaurriðinn gefur sig ekki án fyrirhafnar Veiði Hamrar við Hvítá í sölu hjá Fishpartners Veiði Lærðu að veiða urriðann á Þingvöllum Veiði Takan á Vesturlandi mjög róleg Veiði Sterkar göngur í Norðurá Veiði Norðlenska veiðisumarið fer fetið Veiði Elliðaárnar undir meðaltali síðustu ára Veiði Veiðiblað Veiðihornsins komið út Veiði Veiðitúr til Grænlands í verðlaun Veiði