„Sárt að sjá að íbúar smáhýsa hafi orðið fyrir aðkasti“ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 24. apríl 2021 17:00 Smáhýsin í Gufunesi eru nokkuð úr alfaraleið. Enginn strætó gengur alveg að byggðinni og nokkur spölur er í grunnþjónustu. Vísir Formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar segir sárt að sjá að íbúar smáhýsa í Gufunesi hafi orðið fyrir innbrotum og ónæði. Hann segir verkefnið, að úthluta heimilislausum húsnæði í smáhýsum, enn að nýtt og segist bjartsýnn á að verkefnið muni ganga vel.
Greint var frá því í Morgunblaðinu í morgun að reynsla lögreglunnar af smáhýsunum í Gufunesi hafi hingað til ekki verið góð. Lögregla sé þar í stöðugum verkefnum og á tímabili hafi útköll þangað verið dagleg. Valgarður Valgarðsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við Morgunblaðið, að reynsla lögreglu af smáhýsunum sé ekki góð. Þar hafi ofbeldisverk, skemmdarverk og fíkniefna- og áfengisneysla verið áberandi frá því að fyrstu íbúar fluttu inn. Fólkinu „komið fyrir einhvers staðar úti í móa“ Fimm smáhýsi eru í Gufunesi og er þar langt í næstu þjónustu og almenningssamgöngur og mikil einangrun er á svæðinu. Formaður íbúasamtaka Grafarvogs segir staðsetninguna ekki góða. „Á íbúafundi voru þessi áform máluð afar fallegum litum af borginni. Þetta átti að vera stuðningur við þetta fólk og skaðaminnkandi úrræði. En það er bara ekki rétt. Þessum einstaklingum var bara komið fyrir einhvers staðar úti í móa á einskismannslandi. Það þarf ekki annað en að skoða staðsetningu þessara húsa til að sjá hversu galið þetta er,“ sagði Elísabet Gísladóttir, formaður íbúasamtaka Grafarvogs, í samtali við Morgunblaðið. Smáhýsin í Gufunesi eru nokkuð úr alfaraleið. Enginn strætó gengur alveg að byggðinni og nokkur spölur er í grunnþjónustu.Vísir/Helena Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segist geta tekið undir þetta að vissu leyti. Staðsetningin sé ekki óskastaðsetning miðað við þær forsendur sem settar voru. „Að þetta væri nálægt þjónustu, nálægt strætó og helst í íbúabyggð þar sem það eykur öryggi þeirra sem þarna flytja að hafa okkur öll nálægt sér,“ segir Heiða í samtali við fréttastofu. „Við töldum þó staðsetninguna ásættanlega, þetta er á mjög fallegum stað og það er að byggjast upp mjög skemmtilegt og spennandi hverfi allt um kring.“ Verkefni alls samfélagsins að tryggja öryggi íbúanna Nú stendur til að taka frá eitt smáhýsanna í Gufunesi fyrir starfsmann sem verði alltaf á staðnum. „Við teljum ennþá að þessi staðsetning geti vel gengið. En við höfum nú samt ákveðið að taka þarna eitt hús fyrir, þannig að það verði starfsmaður á staðnum alltaf, þá ekki síður til að standa með þeim einstaklingum sem eru að leigja af okkur og búa þarna. Þeir þurfa greinilega bara enn meiri þjónustu en þeir hafa fengið. Þá er það bara okkar að bregðast við því,“ segir Heiða. Brotist hefur verið inn í eitt smáhýsanna og sést að opnanlegi hluti gluggans framan á húsinu er skemmdur.Vísir/Helena Miklar umræður hafa skapast undanfarin misseri um byggingu smáhýsa fyrir heimilislausa í Reykjavík. Margir hafa lýst yfir óánægju og hræðslu um að hafa slík úrræði inni í íbúabyggð. Á næstu árum er áætlað að fimmtán smáhýsi til viðbótar verði reist í borginni á sjö mismunandi stöðum, meðal annars í Laugardal og miðborginni. „Við horfum ekki bara á það sem verkefni lögreglunnar, Reykjavíkurborgar og þeirra sem flytja inn í þessi hús að þau búi við öryggi, heldur er það verkefni okkar allra í samfélaginu að hér geti allir búið við öryggi. Og að við tökum þetta öll sem okkar verkefni við Reykvíkingar,“ segir Heiða. „Við erum öll saman í þessu samfélagi og samfélagið er best ef okkur öllum líður vel. Sú umfjöllun sem bendir á aðra, ég held að hún gagnist okkur lítið, ef við horfum öll inn á við held ég að við getum öll staðið okkur betur í að bæði bjóða nýja innflytjendur velkomna og þá sem eru að koma úr heimilisleysi velkomið í nágrennið okkar og tryggja þeirra öryggi.“ Telur heppilegra að smáhýsi séu meira inni í borginni Þau smáhýsi sem enn á eftir að taka í notkun verða meira miðsvæðis og inni í þéttari íbúabyggð. Heiða segist sannfærð um að það henti þeim hópi, sem mun búa í smáhýsunum, betur en að vera einangrað. „Það gengur prýðilega að úthluta húsnæði til fólks sem er að koma úr heimilisleysi í Reykjavík. Reykvíkingar eru almennt hjartahlýtt fólk með umburðarlindi og tilbúnir til þess að taka utan um nágrannann og sýna honum skilning þó að hann lifi kannski aðeins öðruvísi lífsstíl en þú eða sé með aðrar venjur,“ segir Heiða. „Ég held að það sé heppilegra að staðsetningin sé dálítið meira inni í borginni. Þá skoðun byggi ég á reynslu annarra landa þar sem þetta hefur verið gert áður en ég hef þó alveg falleg dæmi eins og frá Árhúsum í Danmörku þar sem reis svipuð byggð og er í Gufunesi og lukkaðist alveg virkilega vel.“ Mikilvægt að smáhýsi séu ekki utan alfaraleiðar Eins og staðan er í dag búa tugir Reykvíkinga sem eru að koma úr heimilisleysi víða um borgina. „Þessi tilraun okkar með þessi litlu hús var auðvitað að þau fengju ennþá meira frjálsræði, að það væru kannski þeir einstaklingar sem þyrftu aðeins meira rými fyrir sjálfa sig frekar en þær færu frekar í íbúð í stigagangi eða slíkt,“ segir Heiða. „Ég held að við eigum ekki að gefast upp þó allt gangi ekki eins og okkur langaði eða við sáum fyrir okkur í okkar draumasýn. Við eigum bara að halda áfram og ég held að þau hús sem eigi eftir að rísa núna, sem eru meira miðsvæðis, henti að mörgu leiti þessum hópi betur.“ „Það er betra ef það er stutt í strætó, gott ef það er stutt í sund, heilsugæslu og matvöruverslun og þá þjónustu sem þau þurfa að sækja rétt eins og allir aðrir. Þarna er náttúrulega ekki langt en þetta er kannski ekki í alfaraleið og þessi reynsla sýnir okkur að það er mikilvægt,“ segir Heiða Björg.
Reykjavík Félagsmál Tengdar fréttir Borgarstjóri táraðist yfir uppkomnum smáhýsum, ekki gámahúsnæði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segist ekki tárast oft í vinnunni. Hann hafi þó komist við þegar framkvæmdadeild Reykjavíkurborgar sendi honum mynd í morgun af uppkomnum smáhýsum fyrir heimilislaust fólk í Gufunesi. 3. desember 2020 12:23 Smáhús fyrir heimilislausa komin í Gufunes: „Þetta er ekki hættulegra fólk en við hin“ Ef áætlanir ganga eftir geta fyrstu íbúar smáhúsa í Gufunesi flutt inn í nóvember en húsin eru ætluð heimilislausu fólki. 28. september 2020 11:55 Umræða um smáhýsi lituð af miklu skilningsleysi Áætlað er að um 350 einstaklingar sem búsettir eru í Reykjavík séu heimilislausir. Verkefnisstýra Frú Ragnheiðar segir gríðarlega mikilvægt að koma til móts við þá einstaklinga sem glíma við heimilisleysi og koma fólki í húsnæði en margir skjólstæðingar Frú Ragnheiðar eru í hópi heimilislausra. 21. júní 2020 18:20 Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Innlent Fleiri fréttir Fella niður bátsferðir en fjölga flugferðum Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Sjá meira
Borgarstjóri táraðist yfir uppkomnum smáhýsum, ekki gámahúsnæði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segist ekki tárast oft í vinnunni. Hann hafi þó komist við þegar framkvæmdadeild Reykjavíkurborgar sendi honum mynd í morgun af uppkomnum smáhýsum fyrir heimilislaust fólk í Gufunesi. 3. desember 2020 12:23
Smáhús fyrir heimilislausa komin í Gufunes: „Þetta er ekki hættulegra fólk en við hin“ Ef áætlanir ganga eftir geta fyrstu íbúar smáhúsa í Gufunesi flutt inn í nóvember en húsin eru ætluð heimilislausu fólki. 28. september 2020 11:55
Umræða um smáhýsi lituð af miklu skilningsleysi Áætlað er að um 350 einstaklingar sem búsettir eru í Reykjavík séu heimilislausir. Verkefnisstýra Frú Ragnheiðar segir gríðarlega mikilvægt að koma til móts við þá einstaklinga sem glíma við heimilisleysi og koma fólki í húsnæði en margir skjólstæðingar Frú Ragnheiðar eru í hópi heimilislausra. 21. júní 2020 18:20