Kia Sorento vinnur Red og iF hönnunarverðlaun Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 26. apríl 2021 07:00 Kia Sorento. Kia vann bæði til Red Dot og iF hönnunarverðlauna á dögunum í flokki stórra sportjeppa fyrir hinn nýja Kia Sorento Plug-in Hybrid. Sorento hefur þegar unnið til fjölda verðlauna á undanförnum mánuðum. Sorento fékk m.a. Gullna stýrið í Þýskalandi í flokki stórra sportjeppa og verðlaun fyrir bestu hönnunina hjá Auto Bild Allrad.
Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Öskju. Nú er tengiltvinnútfærsla Sorento einnig verðlaunuð fyrir fallega hönnun hjá Red Dot og iF en verðlaunin hjá þessum aðilum þykja þau eftirsóknarverðustu í hönnunarheiminum. Kia hefur fengið alls 47 Red Dot og iF hönnunarverðlaun fyrir bíla sína síðan 2009 sem er einstakur árangur. „Við erum afskaplega stolt og ánægð með þessa miklu viðurkenningar sem Kia er að fá fyrir hönnun á hinum nýja Sorento. Kia Sorento hefur sópað til sín verðlaunum á stuttum tíma síðan hann kom á markað og gaman að því að bíllinn skuli einnig fá verðlaun nú í Plug-in Hybrid útfærslu frá svo virtum aðilum sem Red Dot of iF sannarleag eru. Þessi verðlaun koma á sérlega skemmtilegum tíma því við vorum einmitt að fá bílinn í tengiltvinnútfærslu til okkar í Öskju. Við finnum fyrir mikilli eftirvæntingu eftir tengiltvinnbílnum en dísilútfærslan af Sorento, sem kom í lok síðasta árs, hefur þegar vakið mikla athygli og verið vinsæll. Tengiltvinn útfærsla Sorento er nú til sýnis og reynsluaksturs hjá okkur í Kia húsinu að Krókhálsi 13,“ segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia.
Mest lesið Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ Innlent Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Innlent „Glatað að heyra af því að fólk hafi meitt sig“ Innlent Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Innlent Sprengjuflugvélar loga víða í Rússlandi Erlent „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ Innlent Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn Innlent „Beið eftir því að eitthvað stórslys myndi gerast“ Innlent Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Innlent