Geimævintýri byggt upp af leikþáttum Ritstjórn Albúmm.is skrifar 26. apríl 2021 20:01 Geimævintýrið segir frá ofurstráknum Ofur-Ólafi og geimprinsessunni Geimgerði sem hittast á plánetunni Ruglumbull. Barnaplatan Út í geim og aftur heim eftir Alexander Frey Olgeirsson er nú komin út. Platan er geimævintýri sem er byggt upp af leikþáttum og ellefu glænýjum barnalögum. Ævintýrið fjallar um ofurstrákinn Ofur-Ólaf og geimprinsessuna Geimgerði sem hittast á plánetunni Ruglumbull og þurfa að leggja krafta sína saman til þess að bjarga plánetunni frá illmenninu Demónusi Þumaltrölli. Demónus Þumaltröll hyggst taka undir sig plánetuna og leggja hana í rúst. Lögin og leikþættirnir mynda því heila sögu. Lögin eru öll frumsamin og eru í popp/rokk stíl undir áhrifum frá 9. áratugnum með tilheyrandi synthum og öðru góðgæti. Höfundurinn, Alexander, fer með hlutverk Ofur-Ólafs ásamt aukahlutverkum, með hlutverk Geimgerðar fer söngkonan Karitas Harpa Davíðsdóttir og uppistandarinn og hlaðvarpsstjórnandinn Salómon Smári Óskarson fer með hlutverk illmennisins Demónusar Þumaltrölls. Karítas Gunnarsdóttir gerir allar teikningar og hannaði plötuumslagið. Alexander vinnur plötuna sjálfur, tekur upp og hljóðblandar en platan er hljóðjöfnuð hjá Bassa Ólafssyni í Stúdíó Tónverk. „Fólk hefur tekið vel í plötuna frá því hún kom út. Ég veit að leikskólar og grunnskólar um allt land eru að spila hana og einnig foreldrar og börn,“ segir Alexander. Plötunni fylgir lítil litabók til þess að hámarka upplifunina og hægt er að fá litabók ásamt bolum og geisladiskum á Facebook-síðu verkefnisins. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Tónlist Krakkar Mest lesið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Tónlist Krakkar Mest lesið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni