Veður

Von á stöku skúr sunnan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður á bilinu einu til ellefu að deginum, þar sem mildast verður suðvestantil.
Hiti verður á bilinu einu til ellefu að deginum, þar sem mildast verður suðvestantil. Vísir/Vilhelm

Stöðugleikinn sem hefur einkennt veðrið undanfarið er áfram til staðar og á landinu er nú fremur hæg norðlæg eða breytileg átt með stöku él norðaustantil. Annars en annars bjart að mestu þó að von sé á stöku skúr sunnanlands.

Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Hiti verður á bilinu einu til ellefu stigum að deginum, þar sem mildast verður suðvestantil.

„Á morgun er þó útlit fyrir að dragi úr ofankomu á Norðaustur- og Austurlandi um stundarsakir en um helgina bætir aftur í norðaustanáttina með rigningu eða slyddu austantil. 

Kalt er á landinu, einkum þó norðan- og austanlands þar sem hiti verður ekki mikið yfir frostmarki en á Suður- og Vesturlandi gætu mælst tveggja stafa tölur yfir daginn.“

Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag og föstudag: Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og að mestu léttskýjað en skúrir sunnanlands. Hiti 3 til 11 stig, hlýjast vestantil.

Á laugardag: Austan og norðaustan átt og rigning eða slydda norðan- og austantil en annars skýjað með köflum og stöku skúr. Hiti 2 til 10 stig að deginum.

Á sunnudag (hvítasunnudagur): Norðaustan strekkingur og rigning eða slydda norðaustan- og austanlands annars bjart með köflum en hægari vindur og stöku skúr á Suðurlandi. Hiti breytist lítið.

Á mánudag (annar í hvítasunnu): Norðaustlæg átt með rigningu eða slyddu austantil en annars bjartviðri.

Á þriðjudag: Útlit fyrir suðaustanátt með rigningu vestantil en annars þurrt. Hlýnandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×