Nýtt fjáröflunarátak UNICEF til að koma bóluefnum til efnaminni ríkja Heimsljós 9. júní 2021 12:34 UNICEF UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, leiðir innkaup og dreifingu bóluefnanna til efnaminni ríkja heimsins fyrir hönd COVAX-samstarfsins. Í nýju fjáröflunarátaki sem hófst í dag kallar UNICEF á Íslandi eftir stuðningi almennings, fyrirtækja og stjórnvalda til að tryggja jafna dreifingu bóluefna gegn kórónuveirunni meðal efnaminni ríkja heimsins. Yfirskrift átaksins er Komum því til skila og þar bendir UNICEF á að það sé ekki einungis siðferðislega rétt heldur einnig hagur allrar heimsbyggðarinnar að tryggja að öll ríki heimsins fái bóluefni fyrir íbúa sína hratt og örugglega. Það er skilvirkasta leiðin til að sigrast á faraldrinum og koma lífi okkar og efnahag aftur í rétt horf. Hægt er að styðja átakið með því að senda SMS-ið COVID í númerið 1900 og tryggja þar með dreifingu bóluefnis fyrir þrjá einstaklinga. „Það er enginn sigurvegari í þessu kapphlaupi, við þurfum öll að standa saman til þess að hægt sé að útrýma veirunni fyrir fullt og allt. Við erum á góðum stað hér á Íslandi og bólusetningar ganga vel en því miður er staðan ekki sú sama í efnaminni ríkjum heimsins. Stjórnlaus útbreiðsla COVID-19 í Suður-Asíu er til dæmis glöggt dæmi um það hversu hratt veiran getur lamað heilbrigðiskerfi og valdið hamförum. Það þarf að bregðast við þessari misskiptingu enda eiga allir sama rétt á að fá bólusetningu. Það hefur aldrei verið jafn mikil þörf á samstöðu eins og nú,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, leiðir innkaup og dreifingu bóluefnanna til efnaminni ríkja heimsins fyrir hönd COVAX-samstarfsins. COVAX-samstarfið er samstarf um 190 ríkja sem tryggja á jafna dreifingu bóluefnis gegn kórónaveirunni meðal efnaminni ríkja heimsins. Nú þegar hefur COVAX-samstarfið komið 78 milljónum skammta til 126 landa, má þar nefna Sýrland, Ghana, Bólivíu, Úkraínu, Mongólíu, Suður-Súdan, Fílabeinsströndina, Kambódíu, Kíribati og Afganistan. Hægt er að fylgjast með þróun bóluefna gegn COVID-19 og árangri COVAX-samstarfsins í sérstöku mælaborðið hér. UNICEF skorar á efnameiri ríki að gefa umframskammta sína „Þrátt fyrir ítrekuð áköll frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO), UNICEF og fleiri stofnunum hefur bóluefnum gegn COVID-19 verið mjög misskipt milli ríkja heimsins. Ástandið á Indlandi hefur valdið því að mikið hefur dregið úr framboði bóluefna til COVAX á sama tíma og mörg efnameiri lönd hafa tryggt sér mun fleiri skammta en þau þurfa. Minna en 1% af bóluefnum sem hafa verið framleidd hafa skilað sér til efnaminni ríkja heimsins,“ segir í frétt frá UNICEF á Íslandi. Þar segir enn fremur að ef efnaminni ríki heimsins eru skilin eftir sé hætta á að ný afbrigði veirunnar breiðist út um heiminn. „Vart þarf að fjölyrða um hversu skelfilegar afleiðingar slíkt hefur á börn um allan heim og þeirra framtíð. UNICEF hefur því sent út alþjóðlegt ákall þar sem skorað er á efnameiri ríki heimsins að gefa umframskammta sína. Nokkur ríki hafa svarað kallinu og vonir standa til um að slík loforð verði einnig gefin á leiðtogafundi G7 ríkjanna sem fer fram í lok vikunnar. UNICEF bendir á að G7 ríkin gætu gefið 20 prósent af bóluefnum sem til eru til COVAX án verulegra tafa á núverandi áætlunum um að bólusetja fullorðna íbúa sína í sumar og er UNICEF tilbúið að dreifa þeim.“ Íslensk stjórnvöld tilkynntu í síðustu viku að verja 500 milljónum króna til COVAX-samstarfsins til viðbótar við það sem stjórnvöld höfðu áður lagt til. Ísland hefur því nú varið rúmum milljarði króna til að tryggja jafna dreifingu bóluefna. Að sögn UNICEF hafa fyrirtæki á Íslandi einnig brugðist við og næstu vikur munu Krónan, Te&Kaffi og BM Vallá bjóða viðskiptavinum sínum að styðja söfnun UNICEF og gefa fyrirtækin framlag á móti. Þá þegar hafa Alvogen og Alvotech gefið 100 þúsund bandaríkjadali í átakið. Einnig taka Vörður, Deloitte og Lindex þátt í átakinu. „Við erum bandamönnum okkar innilega þakklát og vonumst til þess að sem flestir hjálpi okkur að takast á við þetta sögulega verkefni. Þetta ógnarstóra verkefni, að bólusetja heimsbyggðina, bætist ofan á öll önnur verkefni UNICEF í þágu barna og því er mikil þörf á auknum stuðningi. Við stöndum frammi fyrir áskorun sem allur heimurinn þarf að hjálpast við að leysa og það þarf að gerast núna,“ segir Birna að lokum. Hægt er að styðja átakið með því að senda SMS-ið COVID í númerið 1900 (1.900 kr.) og tryggja þar með dreifingu bóluefnis fyrir þrjá einstaklinga. Einnig er hægt að styðja með frjálsu framlagi hér. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Þróunarsamvinna Bólusetningar Mest lesið Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Innlent Hætta sem sáttasemjarar í deilu Ísraela og Hamas Fréttir Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna Erlent Baráttan hafin á TikTok: Traktor í skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Innlent Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina Innlent Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði Innlent Bjartsýn eftir fund í Virginíu vegna Söndru sem afplánar 37 ára dóm Innlent Lögreglan bannaði bjór á B5 Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Þróunarsamvinna Bólusetningar Mest lesið Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Innlent Hætta sem sáttasemjarar í deilu Ísraela og Hamas Fréttir Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna Erlent Baráttan hafin á TikTok: Traktor í skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Innlent Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina Innlent Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði Innlent Bjartsýn eftir fund í Virginíu vegna Söndru sem afplánar 37 ára dóm Innlent Lögreglan bannaði bjór á B5 Innlent