Svona kemst þú upp úr hjólfarinu og tekur skref áfram Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 14. júní 2021 09:36 Sylvía Briem Friðjónsdóttir og Eva Mattadóttir eru þáttastjórnendur Normsins. „Okkar mesti veikleiki er þegar við gefumst upp, besta leiðin til að ná árangri er að reyna einu sinni enn,“ er tilvitnun nýjasta þáttar Normsins. Tilvitnunina á Thomas Edison. Umræðuefni þáttarins er að taka skref áfram í átt að framtíðinni. Flestir þekkja að það er leiðinlegt að vera fastur í sama hjólfarinu. Í þættinum koma þær Eva Mattadóttir og Sylvía Briem Friðjónsdóttir með góðar vangaveltur um það hvaða breytingar fólk getur gert, til að færa sig nær því sem það langar að upplifa í lífinu. „Stundum er maður hressilega fastur í sama hjólfarinu, í mislangan tíma. Hættum því og byrjum að skoða hvaða hjólför gætu leynst í okkar lífi.“ Eitt atriði sem þær nefna er að það getur verið að halda þér aftur ef það er ekki samræmi á milli hegðunar og væntinga. Væntingar geta nefnilega oft valdið okkur gremju eins og þær bentu á í þættinum. Fyrri þátturinn af Taktu lífið lengra er kominn út á Spotify og má einnig heyra í spilaranum neðst í fréttinni. Einu skrefi nær „Það er heilbrigt að hafa væntingar en þær þurfa að vera raunhæfar,“ segir Sylvía meðal annars. Annað sem getur haldið fólki föstu í sama hjólfarinu er að búast við árangri strax (e.instant success). „Maður á ekki endilega rétt á árangri í lífinu,“ bendir Eva á. Þú þarft nefnilega að vinna fyrir hlutunum og það er ekkert alltaf endilega dans á rósunum. Þær nefna líkamann sem dæmi. Margir vilja vera í toppstandi en eru kannski ekki að taka öll skrefin til að koma líkamanum í það toppstand. „Þú færist einu skrefi nær en þarft örugglega að taka þúsund,“ segir Sylvía. Hún bendir á mikilvægi þess að njóta þess að taka öll þessi skref. „Þetta snýst ekki um áfangastaðinn heldur leiðina þangað,“ segir Eva. Að efna loforðin Þær benda á að margir velji skyndilausnirnar og búist við varanlegum góðum árangri, en þar sé stöðugleikinn og samkvæmnin mikilvæg. „Þetta er það sem er kallað consistancy, að mæta á staðinn jafnt og þétt og vinna að einhverju. Þetta er bara nauðsynlegt. Þá er ég ekkert að tala um daga eða vikur, heldur erum við að tala um mánuði eða ár,“ segir Eva. Sylvía bendir á að þessi samkvæmni styrki sjálfstraustið. „Þú efnir loforðin við sjálfan þig,“ segir Sylvía. „Þarna liggur sjálfstraustið okkar. Þess vegna skiptir svo miklu máli að setja sér lítil markmið á dag og efna þau og byggja þannig upp sjálfstraustið og svo stækka verkefnin.“ Þær segja að þetta geti verið erfitt en sé samt nauðsynlegt. „Ég held að ef þú tekur eitthvað út úr þessum þætti í dag, nennir þú að taka þetta. Að setja loforð fyrir ykkur á hverjum einasta degi og efna þau,“ segir Sylvía. Í þættinum fjalla þær einnig um atriði eins og pressuna í kringum væntingar, að við vitum ekki allt, afleiðingar þess að gleyma að horfa á heildarmyndina, að festast í litlu skrefunum. Einnig að leyfa sér að vera of mikið hikandi í þægindunum, að hræðast að leyfa sér að skína, hvaða áhrif það getur haft að loka hurðum og margt fleira tengt því að festast ekki lengi í sömu hjólförunum og taka skref áfram í átt að framtíðinni. Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: 116 - Taktu lífið lengra pt.1 Hlaðvarpsþættirnir Normið birtast vikulega hér á Vísi og á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Settu follow í hlaðvarpsappinu þínu og þá sérðu alltaf þegar nýr þáttur mætir á svæðið. Þáttastjórnendur eru Eva Mattadóttir og Sylvía Briem Friðjóns, athafnakonur og þjálfarar. Hægt er að fylgjast með þeim á Instagram síðunni @normið og HÉR á Vísi. Normið Tengdar fréttir „Ef einhver getur grætt á þessu þá er tilganginum náð“ Sylvía Briem Friðjónsdóttir og Eva Mattadóttir halda úti hlaðvarpinu Normið. Þær kynntust þegar þær störfuðu báðar sem þjálfarar hjá Dale Carnegie og í dag ná þær til þúsunda einstaklinga í gegnum hlaðvarpið. 1. júní 2021 20:00 „Ég er ekki með neina eftirsjá“ „Til þess að njóta góðu stundanna verðum við að eiga erfiðar stundir,“ segir Ellen Helga Steingrímsdóttir. Ellen greindist með þriðja stigs brjóstakrabbamein í febrúar á þessu ári og er nú í krabbameinsmeðferð. 3. júní 2021 07:33 Var nálægt gjaldþroti en gafst ekki upp „Ég er ótrúlega mikið ég sjálf og ég er búin að læra að meta það hvað það er ótrúlega dýrmætt,“ segir Gerður Arinbjarnar, frumkvöðull og eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush. 11. júní 2021 08:30 Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira
Flestir þekkja að það er leiðinlegt að vera fastur í sama hjólfarinu. Í þættinum koma þær Eva Mattadóttir og Sylvía Briem Friðjónsdóttir með góðar vangaveltur um það hvaða breytingar fólk getur gert, til að færa sig nær því sem það langar að upplifa í lífinu. „Stundum er maður hressilega fastur í sama hjólfarinu, í mislangan tíma. Hættum því og byrjum að skoða hvaða hjólför gætu leynst í okkar lífi.“ Eitt atriði sem þær nefna er að það getur verið að halda þér aftur ef það er ekki samræmi á milli hegðunar og væntinga. Væntingar geta nefnilega oft valdið okkur gremju eins og þær bentu á í þættinum. Fyrri þátturinn af Taktu lífið lengra er kominn út á Spotify og má einnig heyra í spilaranum neðst í fréttinni. Einu skrefi nær „Það er heilbrigt að hafa væntingar en þær þurfa að vera raunhæfar,“ segir Sylvía meðal annars. Annað sem getur haldið fólki föstu í sama hjólfarinu er að búast við árangri strax (e.instant success). „Maður á ekki endilega rétt á árangri í lífinu,“ bendir Eva á. Þú þarft nefnilega að vinna fyrir hlutunum og það er ekkert alltaf endilega dans á rósunum. Þær nefna líkamann sem dæmi. Margir vilja vera í toppstandi en eru kannski ekki að taka öll skrefin til að koma líkamanum í það toppstand. „Þú færist einu skrefi nær en þarft örugglega að taka þúsund,“ segir Sylvía. Hún bendir á mikilvægi þess að njóta þess að taka öll þessi skref. „Þetta snýst ekki um áfangastaðinn heldur leiðina þangað,“ segir Eva. Að efna loforðin Þær benda á að margir velji skyndilausnirnar og búist við varanlegum góðum árangri, en þar sé stöðugleikinn og samkvæmnin mikilvæg. „Þetta er það sem er kallað consistancy, að mæta á staðinn jafnt og þétt og vinna að einhverju. Þetta er bara nauðsynlegt. Þá er ég ekkert að tala um daga eða vikur, heldur erum við að tala um mánuði eða ár,“ segir Eva. Sylvía bendir á að þessi samkvæmni styrki sjálfstraustið. „Þú efnir loforðin við sjálfan þig,“ segir Sylvía. „Þarna liggur sjálfstraustið okkar. Þess vegna skiptir svo miklu máli að setja sér lítil markmið á dag og efna þau og byggja þannig upp sjálfstraustið og svo stækka verkefnin.“ Þær segja að þetta geti verið erfitt en sé samt nauðsynlegt. „Ég held að ef þú tekur eitthvað út úr þessum þætti í dag, nennir þú að taka þetta. Að setja loforð fyrir ykkur á hverjum einasta degi og efna þau,“ segir Sylvía. Í þættinum fjalla þær einnig um atriði eins og pressuna í kringum væntingar, að við vitum ekki allt, afleiðingar þess að gleyma að horfa á heildarmyndina, að festast í litlu skrefunum. Einnig að leyfa sér að vera of mikið hikandi í þægindunum, að hræðast að leyfa sér að skína, hvaða áhrif það getur haft að loka hurðum og margt fleira tengt því að festast ekki lengi í sömu hjólförunum og taka skref áfram í átt að framtíðinni. Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: 116 - Taktu lífið lengra pt.1 Hlaðvarpsþættirnir Normið birtast vikulega hér á Vísi og á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Settu follow í hlaðvarpsappinu þínu og þá sérðu alltaf þegar nýr þáttur mætir á svæðið. Þáttastjórnendur eru Eva Mattadóttir og Sylvía Briem Friðjóns, athafnakonur og þjálfarar. Hægt er að fylgjast með þeim á Instagram síðunni @normið og HÉR á Vísi.
Hlaðvarpsþættirnir Normið birtast vikulega hér á Vísi og á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Settu follow í hlaðvarpsappinu þínu og þá sérðu alltaf þegar nýr þáttur mætir á svæðið. Þáttastjórnendur eru Eva Mattadóttir og Sylvía Briem Friðjóns, athafnakonur og þjálfarar. Hægt er að fylgjast með þeim á Instagram síðunni @normið og HÉR á Vísi.
Normið Tengdar fréttir „Ef einhver getur grætt á þessu þá er tilganginum náð“ Sylvía Briem Friðjónsdóttir og Eva Mattadóttir halda úti hlaðvarpinu Normið. Þær kynntust þegar þær störfuðu báðar sem þjálfarar hjá Dale Carnegie og í dag ná þær til þúsunda einstaklinga í gegnum hlaðvarpið. 1. júní 2021 20:00 „Ég er ekki með neina eftirsjá“ „Til þess að njóta góðu stundanna verðum við að eiga erfiðar stundir,“ segir Ellen Helga Steingrímsdóttir. Ellen greindist með þriðja stigs brjóstakrabbamein í febrúar á þessu ári og er nú í krabbameinsmeðferð. 3. júní 2021 07:33 Var nálægt gjaldþroti en gafst ekki upp „Ég er ótrúlega mikið ég sjálf og ég er búin að læra að meta það hvað það er ótrúlega dýrmætt,“ segir Gerður Arinbjarnar, frumkvöðull og eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush. 11. júní 2021 08:30 Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira
„Ef einhver getur grætt á þessu þá er tilganginum náð“ Sylvía Briem Friðjónsdóttir og Eva Mattadóttir halda úti hlaðvarpinu Normið. Þær kynntust þegar þær störfuðu báðar sem þjálfarar hjá Dale Carnegie og í dag ná þær til þúsunda einstaklinga í gegnum hlaðvarpið. 1. júní 2021 20:00
„Ég er ekki með neina eftirsjá“ „Til þess að njóta góðu stundanna verðum við að eiga erfiðar stundir,“ segir Ellen Helga Steingrímsdóttir. Ellen greindist með þriðja stigs brjóstakrabbamein í febrúar á þessu ári og er nú í krabbameinsmeðferð. 3. júní 2021 07:33
Var nálægt gjaldþroti en gafst ekki upp „Ég er ótrúlega mikið ég sjálf og ég er búin að læra að meta það hvað það er ótrúlega dýrmætt,“ segir Gerður Arinbjarnar, frumkvöðull og eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush. 11. júní 2021 08:30