Heljarinnar tónleikar – kraftur kvenna í fyrirrúmi Ritstjórn Albúmm.is skrifar 14. júlí 2021 14:30 Sennheiser og Iceland Sync kynna tónleika með okkar skærustu tónlistarkonum þar sem skapandi kraftur kvenna verður í fyrirrúmi.
Bríet, Cell7, Klara Elias, Ragga Gröndal, Siggy og Suncity eru allt í senn, margverðlaunaðar söngkonur, rapparar og lagahöfundar sem og nýjar vonarstjörnur í íslensku tónlistarlífi. Þær koma allar saman miðvikudaginn 14. júlí í Gamla Bíó og flytja nokkur lög hver. Þar styðja þær sem eru lengra komnar, við þær sem eru að stíga sín fyrstu skref í bransanum. Þessar mögnuðu tónlistarkonur eiga það sameiginlegt að vilja vekja athygli á hæfileikum og vinnusemi kvenna og minnihlutahópa í karllægum tónlistariðnaði. Þær nálgast tónlistina allar á ólíkan máta en hafa það að leiðarljósi að fara sínar eigin leiðir. Þessi viðburður er gerður í samstarfi við Sennheiser, en þeir hafa á undanförnum misserum verið að efla og styðja við upprennandi tónlistarfólk víða um heim. Önnur fyrirtæki sem koma að viðburðinum eru Red Bull, Wind, Ölgerðin og TIX.is Gamla bíó, 14. júlí, hús opnar 19:00 – tónleikar hefjast 19:30. Hægt er að nálgast miða HÉR.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun