Veður

Lægð nálgast úr suð­austri

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður sjö til fjórtán stig yfir daginn, hlýjast austantil og svalast á Vestfjörðum.
Hiti verður sjö til fjórtán stig yfir daginn, hlýjast austantil og svalast á Vestfjörðum. Veðurstofan

Landsmenn mega reikna með vestan- og norðvestan golu í dag og sums staðar vætu, einkum fyrir austan, en þurrt að kalla á suðvestanverðu landinu. Hiti veður sjö til fjórtán stig yfir daginn, hlýjast austantil og svalast á Vestfjörðum.

Á vef Veðurstofunnar segir að svo komi lægð úr suðvestri á morgun, laugardag, með austanátt og rigningu sunnan- og vestantil, en hins vegar verður úrkomulítið á Norðausturlandi.

„Á sunnudag er útlit fyrir suðvestlæga átt með skúraveðri, en aftur verður úrkomulítið norðaustantil.“

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Austlæg átt 8-13 m/s og rigning, en hægari og úrkomulítið á norðanverðu landinu fram undir kvöld. Hiti 7 til 12 stig.

Á sunnudag: Suðvestan 5-10 og skúrir, en léttskýjað norðaustantil á landinu. Sunnan 8-13 um kvöldið og rigning sunnan- og vestanlands. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast um landið norðaustanvert.

Á mánudag: Stíf vestlæg átt og víða rigning. Lægir og styttir upp seinnipartinn, fyrst á sunnanverðu landinu. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast á Austfjörðum.

Á þriðjudag: Ákveðin norðanátt og talsverð rigning eða slydda á austanverðu landinu, en hægari og þurrt vestantil. Hiti frá 2 stigum í innsveitum norðaustanlands, upp í 10 stig á Suðvesturlandi.

Á miðvikudag (haustjafndægur): Norðvestlæg átt með rigningu eða slyddu á norðanverðu landinu, en skúrir sunnanlands. Svalt í veðri.

Á fimmtudag: Útlit fyrir norðlæga átt og rigningu eða slyddu fyrir norðan, en léttskýjað sunnantil. Hiti breytist lítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×