Hvöss norðanátt með slyddu eða snjókomu fylgir krappri lægð Atli Ísleifsson skrifar 27. september 2021 07:16 Seint í dag dregur þó úr vindi og úrkomu. Vísir/Vilhelm Kröpp lægð þokast nú til vesturs fyrir norðan land og fylgir henni hvöss norðanátt með slyddu eða snjókomu norðvestantil á landinu. Gular viðvaranir eru í gildi Á Breiðafjarðarsvæðinu, Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra. Seint í dag dregur þó úr vindi og úrkomu.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að norðanáttin verði einnig stíf á Suðvesturlandi, en í öðrum landshlutum verði hægari vindur og þurrt að mestu. Seinnipartinn fer þó að rigna suðaustantil á landinu. Hiti verður á bilinu núll til átta stig, svalast á Vestfjörðum. „Á morgun gengur svo önnur djúp lægð til vesturs fyrir norðan land. Þá er útlit fyrir norðvestan og vestan 15-23 m/s á norður- og norðvesturlandi með talsverðri snjókomu eða slyddu, og á Vestfjörðum hvessir enn frekar þegar líður á daginn. Á þessum slóðum er því útlit fyrir þunga færð og slæmt ferðaveður. Síðdegis á morgun dregur úr ofankomunni, og úr vindi annað kvöld. Sunnan- og austanlands verður hins og vegar hægari vindur og rigning eða slydda með köflum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákortið fyrir kl 14 í dag. Hvasst verður á vestan- og norðvestanverðu landinu.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðvestan og vestan 15-23 m/s og slydda eða snjókoma á N- og NV-landi, og hvessir enn frekar á Vestfjörðum seinnipartinn. Hægari vindur og rigning eða slydda með köflum S- og A-lands. Hiti 0 til 7 stig, mildast SA-til. Dregur úr vindi og úrkomu um kvöldið. Á miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-10, en 8-15 vestast á landinu fyrri part dags. Skúrir eða slydduél, en úrkomulítið N-lands. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn. Á fimmtudag: Gengur í norðaustan 8-13. Dálítil rigning eða slydda með köflum N- og A-lands, en þurrt um landið SV-vert. Hiti breytist lítið. Á föstudag, laugardag og sunnudag: Norðan- og norðaustanátt og rigning með köflum um landið N- og A-vert, en úrkomulítið SV-lands. Hiti 4 til 9 stig.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Fleiri fréttir Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Sjá meira