Innlent

Útilokar að einhver hafi komist í kjörgögnin

Berghildur Erla Bernharðsdóttir og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa
Ingi Tryggvason, yfirmaður kjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi útilokar að einhver hefði getað farið inn í salinn þar sem kjörgögnin voru meðan yfirkjörstjórnin brá sér frá. 
Ingi Tryggvason, yfirmaður kjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi útilokar að einhver hefði getað farið inn í salinn þar sem kjörgögnin voru meðan yfirkjörstjórnin brá sér frá.  Vísir

Eigendur Hótels Borgarness telja afar ósennilegt að nokkur hafi getað átt við óinnsigluð kjörgögn sem skilin voru eftir í læstum veislusal af yfirkjörstjórn. Myndavélar séu við alla útganga salarins. Formaður yfirkjörstjórnar segir öruggt að enginn hafi farið inn í salinn meðan hann og aðrir í kjörstjórninni brugðu sér frá. 

Yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi hefur í fjörutíu ár eða lengur talið atkvæði í Alþingiskosningum í veislusal Hótels Borgarness að sögn eigenda  og hefur allrar varúðar verið gætt við talninguna eins og hólfun salarins og öryggismyndavélar

Ákveðið var að endurtelja atkvæði þar í gær sem kom af stað mikilli hringekju við útdeilingu jöfnunarþingsæta. 

Ingi Tryggvason formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi segir að endurtalningin þar hafi verið ákveðin því það var svo mjótt á munum eftir  ábendingu frá Landskjörstjórn. Hann segir ástæðuna alls ekki vera þá að  kjörgögnin voru skilin eftir óinnsigluð eftir talningu  eins og fram hefur komið.

„Við fengum ábendingu um það að það munaði litlu í tveimur kjördæmum í sambandi við jöfnunarsæti og ákváðum því að endurtelja atkvæðin,“ segir Ingi.

Ávallt sami hátturinn

Eins og fram hefur komið hefur framkvæmd kosningana nú verið kærð til lögreglu en samkvæmt 104. grein kosningalaga á að innsigla atkvæði að talningu lokinni. Ingi segir að sami háttur hafi ávallt verið hafður á talningu í Norðvesturkjördæmi. 

„Atkvæðin eru geymd inn í þeim sal þar sem talningin fer fram.  Salurinn er þá læstur og það eru öruggismyndavélar í honum. Þetta er bara hefðbundið og hefur verið gert eins síðan ég tók þetta embætti að mér,“ segir Ingi.

Ingi útilokar að einhver hafi getað komið inn í salinn meðan yfirkjörstjórnin brá sér frá.

„Við vitum það alveg að það fór enginn inn í salinn þann stutta tíma sem við vikum frá,“ segir hann.

Lentu í C-bunka

Hann segir að ástæðuna fyrir því að endurtalningin hafi ekki skilað sömu niðurstöðu og áður vera einfalda.

„Helsta ástæðan  var að það höfðu mislagst atkvæði, þau sem sagt áttu ekki að vera í C- bunkanum en höfðu lent þar,“ segir Ingi.

Kjörgögnin úr Norðvesturkjördæmi eru nú geymd á Lögreglustöðinni í Borgarnesi en hefð er fyrir því að geyma þau þar þar til þeim er skilað til Dómsmálaráðuneytis. Vegna kærunnar ber lögreglu nú hins vegar að rannsaka gögnin en þau bíða þess nú í fangageymslu að því er fréttastofa kemst næst. 


Tengdar fréttir

„Þetta er auðvitað allsendis óviðunandi“

Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna segir mikilvægt að komast til botns í því hvort gerði hafi verið mistök við framkvæmd kosninga. Hún þurfi að vera hafin yfir allan vafa.

At­kvæði verða talin aftur í Suður­kjör­dæmi

Ráðist verður í endurtalningu atkvæða í Suðurkjördæmi eftir að fjórir stjórnmálaflokkar fóru fram á slíkt. Þetta staðfestir Þórir Haraldsson, formaður yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi.

Telur eðlilegt að telja aftur í öllum kjördæmum

Oddviti Vinstri grænna í Suðurkjördæmi segir slæmt að upplifa að traust á talningu atkvæða hafi rofnað. Hún ásamt fulltrúum þriggja annarra flokka hafa farið fram á endurtalningu atkvæða í kjördæminu.

Vill skýrslu frá öllum yfirkjörstjórnum um kosningarnar

Kristín Edwald, formaður Landskjörstjórnar, segir að óskað hafi verið eftir skýrslum frá yfirkjörstjórnum í öllum kjördæmum um framkvæmd kosninga. Beiðni liggi fyrir um endurtalningu í Suðurkjördæmi en annars sé mat á endurtalningu í höndum yfirkjörstjórna í hverju kjördæmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×