Stormur syðst og allt að 35 metrar í hviðum Atli Ísleifsson skrifar 7. október 2021 07:21 Vindakort fyrir klukkan 14 í dag. Gular veðurviðvaranir vegna vinds eru í gildi á sunnanverðu landinu og síðar einnig á Vestfjörðum og vindhviðum kringum 35 metrar á sekúndu mælast við fjöll. Veðurstofan Hvasst verður víða um land í dag. Spáð er allhvassri eða hvassri austanátt, sums staðar stormi syðra og víða rigningu, talsveðri um tíma, einkum suðaustanlands.
Gular veðurviðvaranir vegna vinds eru í gildi á sunnanverðu landinu og síðar einnig á Vestfjörðum og vindhviðum kringum 35 metrar á sekúndu mælast við fjöll. Í hugleiðingum veðurstofunnar segir að ökumenn séu hvattir til að aka varlega, sér í lagi ef ökutækin eru viðkvæm fyrir vindum. „Einnig þarf að huga að og tryggja lausa hluti utandyra, sem gætu fokið. Snýst í hægari suðlæga átt og rofar til í nótt, fremur hæg suðaustlæg átt og rigning með köflum á morgun, en allhvöss eða hvöss norðaustanátt á Vestfjörðum. Hiti 3 til 11 stig, hlýjast syðst.“ Spákortið fyrir klukkan 15.Veðurstofan Gular viðvaranir í gildi: Suðurland: Austan hvassviðri eða stormur undir Eyjafjöllum 6. okt. kl. 23:00 – 7. okt. kl. 17:00 Vestfirðir: Norðaustan hvassviðri eða stormur undir Eyjafjöllum 7. okt. kl. 15:00 – 23:59 Suðausturland: Austan hvassviðri eða stormur í Öræfum 7. okt. kl. 08:00 – 17:00 Miðhálendið: Austan og norðaustan hvassvirði eða stormur (Gult ástand) 7. okt. kl. 07:00 – 21:00 Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðaustlæg átt, 5-13 m/s, en norðaustan 13-18 á Vestfjörðum og rigning með köflum, en hægara og úrkomulítið NA-lands. Hiti 6 til 11 stig. Á laugardag: Norðaustan 5-13 m/s og dálítil rigning, en hægari suðaustlæg átt og úrkomumeira sunnan heiða fram á kvöld. Hiti 4 til 9 stig. Á sunnudag: Hæg norðvestlæg átt og skýjað með köflum, en hvassara og dálítil væta með A-ströndinni. Hiti 2 til 6 stig að deginum, en kringum frostmark fyrir norðan. Á mánudag: Fremur hægir vindar, úrkomulítið og sums staðar bjartviðri. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag og miðvikudag: Útlit fyrir sunnanáttir með rigningu og hlýnandi veðri, en þurrt að mestu á N- og A-landi.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Fleiri fréttir Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Sjá meira