Níutíu af 92 handtökum á heimaleikjum enska landsliðsins voru á EM í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. október 2021 17:01 Það voru oft mikil læti í London í kringum leiki enska landsliðsins. Hér er einn stuðningsmaður enska landsliðsins að láta í sér heyra. Getty/Martin Pope Nýjar tölur frá breska innanríkisráðuneytinu sýna að níutíu handtökur voru gerðar í kringum heimaleiki enska landsliðsins á Evrópumótinu í sumar.
Enska landsliðið spilaði sex af sjö leikjum sínum á Evrópumótinu á Wembley eða alla nema leikinn í átta liða úrslitunum sem fór fram í Róm á Ítalíu. Enska liðið tapaði á endanum í vítakeppni á móti Ítalíu í úrslitaleik mótsins. New figures have revealed the arrests of football fans at England's Euro 2020 games.— BBC Sport (@BBCSport) October 14, 2021 Á úrslitaleik Englands og Ítalíu voru 39 handtökur, 28 voru handteknir í kringum leik Englands og Skotlands í riðlakeppninni og átján handtökur voru á undanúrslitaleik Englendinga og Dana. Hinar sex handtökurnar tengdar leikjum á EM á Wembley voru allar á undanúrslitaleik Spánverja og Ítala. Það kemur í ljós í næstu viku hvort enska landsliðið þurfi að spila einhverja heimaleiki á næstunni fyrir luktum dyrum vegna þess sem gerðist í kringum úrslitaleikinn í sumar. Stuðningsmenn slógust þá við öryggisverði og lögreglu eftir að hafa reynt að brjóta sér leið inn á leikvanginn. 93 prósent fótboltaleikja á 2020-21 tímabilinu fóru fram án áhorfenda vegna kórónuveirunnar og það þýddi að handtökum í kringum þessa fótboltaleiki fækkaði úr 1089 niður í 116 á milli tímabila. Flestar handtökur voru hjá Birmingham City eða 54 en í ensku úrvalsdeildinni voru flestar handtökur á leikjum Liverpool eða 44.
Enski boltinn EM 2020 í fótbolta Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Fleiri fréttir Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Brentford - Tottenham | Lundúnaslagur í fyrstu umferð Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Sjá meira