„Mitt besta verk hingað til“ Ritstjórn Albúmm.is skrifar 18. október 2021 22:00 Mynd: Berglaug Garðarsdóttir Föstudaginn, 15. október gaf Birnir út plötuna Bushido. Þetta fimmtán laga stórvirki hefur verið í vinnslu í þrjú ár. Hvert einasta lag segir sína sögu. Textarnir eru persónulegir, djúpir og ljóðrænir. Tónlistarfólkið Aron Can, Krabba Mane, GDRN og Högni koma fram á plötunni og pródúsering er í höndum landsliðs íslenskra tónlistarmanna; Marteinn Hjartarson (Bngrboy), Arnar Ingi Ingason (Young Nazareth), Þormóður Eiríksson og Þórir Már Davíðsson. Birnir segir plötuna sitt besta verk hingað til og lýsir ferlinu sem löngu og ströngu með hæðum og lægðum. Mikil eftirvænting hefur verið eftir plötunni en Birnir er á sama tíma einn vinsælasti tónlistarmaður og virtasti rappari landsins. Þessi einstaka staða gerir honum kleift að sanka að sér aðdáendum frá öllum hliðum samfélagsins. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Tónlist Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Halla á hátíðarsýningu Attenborough Lífið
Hvert einasta lag segir sína sögu. Textarnir eru persónulegir, djúpir og ljóðrænir. Tónlistarfólkið Aron Can, Krabba Mane, GDRN og Högni koma fram á plötunni og pródúsering er í höndum landsliðs íslenskra tónlistarmanna; Marteinn Hjartarson (Bngrboy), Arnar Ingi Ingason (Young Nazareth), Þormóður Eiríksson og Þórir Már Davíðsson. Birnir segir plötuna sitt besta verk hingað til og lýsir ferlinu sem löngu og ströngu með hæðum og lægðum. Mikil eftirvænting hefur verið eftir plötunni en Birnir er á sama tíma einn vinsælasti tónlistarmaður og virtasti rappari landsins. Þessi einstaka staða gerir honum kleift að sanka að sér aðdáendum frá öllum hliðum samfélagsins. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Tónlist Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Halla á hátíðarsýningu Attenborough Lífið