Borce Ilievski hættur með ÍR-liðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2021 23:18 Það hefur lítið gengið upp hjá Borce Ilievski og ÍR-liðinu í upphafi tímabilsins. Vísir/Bára Dröfn Borce Ilievski hefur stýrt sínum síðasta leik sem þjálfari ÍR í Subway-deild karla í körfubolta en þetta kom fyrst fram í Subway-Körfuboltakvöldi í kvöld.
ÍR-ingar hafa tapað þremur fyrstu leikjum sínum í Subway-deildinni og síðasti leikurinn hans var sextán stiga tap á móti deildarmeisturum Keflavíkur í Seljaskólanum í gær. Liðið hafaði áður tapað í framlengingu á móti Stjörnunni og á móti nýliðum Breiðabliks. Liðið missti líka af úrslitakeppninni í fyrra þegar liðið vann bara 8 af 22 leikjum og endaði í tíunda sæti. Borce var á sínu sjöunda tímabili með ÍR-liðið eftir að hafa tekið við af Bjarna Magnússyni eftir sex leiki á 2015-16 tímabilinu. Enginn þjálfari hefur stýrt ÍR-liðinu í jafnlangan tíma síðan að Einar Ólafsson gerði liðið margoft af Íslandsmeisturum á áttunda ártugnum. ÍR-liðið náði sinum besta árangri í fjóra áratugi undir stjórn Borce og var fyrir tveimur árum aðeins einum leik frá sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli frá 1977. Undir stjórn Borce komst ÍR-liðið í úrslitakeppnina þrjú ár í röð og bætti sig á hverju ári. Datt út í átta liða úrslitum vorið 2017, komst í undanúrslitin vorið 2018 og loks alla leið í úrslitaeinvígið vorið 2019 þar sem liðið tapaði á endanum í oddaleik á móti KR eftir að hafa komist í bæði 1-0 og 2-1 í einvíginu. ÍR-liðið hefur skorað minna og minna með hverjum leik í Subway-deildinni í vetur og skoraði aðeins 73 stig á heimavelli á móti Keflavík í gærkvöldi.
Subway-deild karla ÍR Körfuboltakvöld Mest lesið UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Fyrirliði Ísraels: „Fengi langt bann ef ég segði skoðun mína“ Fótbolti Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Enski boltinn Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Fótbolti Fleiri fréttir Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Sjá meira