Ágúst segir sérfræðinga MAST hafa farið ranglega með aldur Gústa Jr. og meintan slæman aðbúnað. MAST hefur kært tónlistarmanninn fyrir brot lögum um velferð dýra með vísan til þess að óheimilt sé að halda vilt dýr á Íslandi.
Fram kemur í greinargerð ákæruvaldsins sem lögð var fram fyrir héraðsdómi að Ágúst hafi tjáð fulltrúum MAST að hann væri ekki umráðamaður refsins og bæri enga ábyrgð á honum. Kvaðst hann einungis hafa fengið refinn að láni til að taka upp myndband en myndbönd Ágústs hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum TikTok.
Lögregla taldi þetta stangast á við ummæli sem Ágúst hafði látið falla í myndböndum sínum og í viðtölum við Vísi og Mbl.is þar sem hafi komið skýrt að hann væri umráðamaður refsins og héldi hann sem gæludýr sitt.
Tónlistarmaðurinn samdi lag um baráttuna við MAST frumflutti sköpunarverkið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
Vildi ekki gefa upp hvar refurinn væri niðurkominn
Í þættinum kom Ágúst sér undan því að svara hvort hann væri raunverulegur eigandi Gústa Jr. og gaf til kynna að hann þyrfti að sýna varkárni eftir að ítrekaðar skammir frá lögmanni sínum.
„Ég get lítið tjáð mig um það hvort að ég sé með hann akkúrat núna en ég get allavega fullvissað ykkur um að hann er í góðu yfirlæti. Við erum að skoða hvort refir geti talist sem gæludýr svo lengi sem það sé auðvitað farið vel með þá og þeir séu í góðra vina hópi,“ sagði Ágúst.
Mikið hefur verið fjallað um mál Ágústs og Gústa Jr. en tónlistarmaðurinn segir að hann hafi fyrst áttað sig á alvarleika málsins þegar lögregla mætti óvænt heim til hans með húsleitarheimild um miðjan október.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ágúst umgengst refi en fjallað var um það í fréttum Stöðvar 2 árið 2017 að faðir hans Árni B. Erlingsson, bóndi á Laugabóli við Arnarfjörð, hafi lengi stundað það að ala upp refi sem gæludýr.
„Refir eru réttdræpir hér á landi og þeir eru skotnir í hundraðatali á hverju ári þannig að alast upp við það sem krakki að sjá pabba þyrma einum og einum yrðlingi er bara frábært. Það er örugglega þess vegna sem ég kann svona vel á þá og þegar mér bauðst þetta tækifæri þá ákvað ég að stökkva á þetta,“ segir Ágúst.
Hann bætir við að fjölskylda hans væri ekki með refi í dag og hann viti ekki til þess að MAST hafi gert sér ferð á heimili þeirra vegna þessa.

Alls ekki um neinn yrðling að ræða
Ágúst hafnar því alfarið að Gústi Jr. sé yrðlingur líkt og víða hefur verið fullyrt og segir refinn í raun vera sex ára gamlan.
„Ég hafði mikla trú á því að það væru sérfræðingar hjá Matvælastofnun en það var gjörsamlega fáránlegt þegar þeir fullyrtu að þetta væri yrðlingur. Ef maður er með yrðling þá veit maður að hann passar nánast í lófann, mér finnst svolítið spes að þau fullyrði reglulega um það.“
Í Facebook-færslu sem Dýraþjónusta Reykjavíkur birti í lok september var fullyrt að þó Gústi Jr. væri enn frekar krúttlegur og þokkalega lyktandi myndi það breytast á næstu mánuðum þegar dýrið verði kynþroska. Hafa fleiri gagnrýnendur Ágústs tekið undir þetta og spáð því að hann ætti eftir að gefast upp á samverunni þegar refurinn næði kynþroska og færi að ókyrrast.

„Hann er ljúfur og þessir sérfræðingar hjá Matvælastofnun vildu líka meina að hann sé svo rosalega stressaður á myndböndunum. Ég hef horft á þessi myndbönd og ég hef ekki séð slakari ref, þau ættu kannski að gera sér ferð í húsdýragarðinn og skoða hvort þeir refir séu eitthvað pollrólegir, ég sé ekki fram á það,“ segir Ágúst.
Það sé erfitt að horfa upp á fólk saka hann um dýraníð og að hugsa illa um dýrið.
„Þeir sem eru að gagnrýna refahald gera sér ekki grein fyrir því að þessi refur á sér bara tvo kosti: Að vera í fóstri eða vera drepinn. Ég veit alveg að ef hann fer í Húsdýragarðinn og verður með villtum refum sem hann hefur aldrei verið með áður þá mun hann bara deyja. Hvernig haldið þið að viltu refirnir í Húsdýragarðinum taki á móti heimavönum Gústa Jr.? Haldið þið að honum myndi líða vel þar?“
Ofdekraður refur sem geti ekki lifað í villtri náttúrunni
Ágúst neitar því ekki að Gústi Jr. sé orðinn vanur svolitlum lúxus og geti jafvel talist ofdekraður. Því sé sérstaklega erfitt að sjá fólk fullyrða að dýrið hafi það skítt.
„Hann fær það sem hann vill og ef hann er svangur þá fær hann bara nóg að éta, svona refir borða svo mikið. Það er ekki ókeypis að halda svona ref og núna er ég með lögmann, það er ekki ókeypis.“
Sumir hafa kallað eftir því að Gústa Jr. verði sleppt aftur út í náttúruna en Ágúst telur fullvíst að hann myndi ekki lifa lengi í náttúrunni.
„Hann hefur aldrei veitt sér til matar. Svona refir koma oftast sem yrðlingar sem refaskyttur hafa ákveðið að þyrma en hefðbundna aðferðin er að taka mömmuna og pabbann og skjóta yrðinganna. Ég veit ekki hvort að þessir dýraverndunarsinnar vilja að Gústa Jr. verði bara breytt í loðfeld.“
Horfa má á viðtalið við Ágúst í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.