Fótbolti

Valur biður Hannes afsökunar | Einkahúmor sjálfboðaliða

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Valsmenn hafa beðið fyrrverandi markvörð liðsins, Hannes Þór Halldórsson, afsökunnar á tilkynningu sem birtist á Twitter-síðu félagsins þar sem fram kom að Hannes hafi verið rekinn frá félaginu.
Valsmenn hafa beðið fyrrverandi markvörð liðsins, Hannes Þór Halldórsson, afsökunnar á tilkynningu sem birtist á Twitter-síðu félagsins þar sem fram kom að Hannes hafi verið rekinn frá félaginu. vísir/bára

Knattspyrnudeild Vals hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem Hannes Þór Halldórsson, fyrrverandi markvörður liðsins og íslenska landsliðsins, er beðinn afsökunnar á misheppnuðum einkahúmor sjálfboðaliða.

Fyrr í dag var greint frá því að Hannes Þór og Valur hefðu gert með sér starfslokasamning, og í kjölfarið á því birtist tilkynning á Twitter-síðu félagsins þar sem segir að Hannes hafi hreinlega verið rekinn frá félaginu.

Eins og áður segir hafa Valsmenn nú sen frá sér tilkynningu þar sem kemur fram að fyrirsögn fyrri tilkynningar lýsi á engan hátt starfslokum Hannesar hjá Val. Þá kemur einnig fram að Valur hafi haft samband við Hannes og beðist afsökunnar.

Afsökunarbeiðni Valsmanna

„Misheppnaður einkahúmor sjálfboðaliða um starfslok Hannesar Þór Hallsórssonar voru birt fyrir mistök á facebook síðu Valur fótbolti. Þessi fyrirsögn lýsir á engan hátt starfslokum Hannesar hjá Val sem voru í mesta bróðerni.“

„Valur fótbolti hefur haft samband við Hannes Þór og beðist afsökunar, jafnframt biðjum við alla aðra hluðaðeigandi velvirðingar.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×