Djúp lægð stjórnar veðrinu austantil en hægara vestantil Atli Ísleifsson skrifar 17. nóvember 2021 07:09 Veðrinu á austanverðu landinu er stjórnað af djúpri lægð við Jan Mayen og þar er norðvestan hvassviðri eða stormur með éljum. Vísir/Vilhelm Veður á landinu er nú tvískipt og mikill munur á milli landshelminga. Vestantil ræður hæðarhryggur ríkjum og þar er hæg breytileg átt og léttskýjað.
Veðrinu á austanverðu landinu er hins vegar stjórnað af djúpri lægð við Jan Mayen og þar er norðvestan hvassviðri eða stormur með éljum. Það lægir þó smám saman í dag og styttir upp. Frost um allt land, en allt að átta stig inn til landsins. Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að seint í dag nálgist svo úrkomusvæði úr suðri og í kvöld verði kominn austan strekkingur nærri suðurströndinni með snjókomu eða slyddu og hitinn mjakast uppávið. „Á morgun er spáð austlægri átt á landinu og vindur nær sér ekki á strik, verður yfirleitt á bilinu 5-13 m/s. Sunnanlands verður rigning eða slydda með köflum og snjókoma í uppsveitum. Hiti 0 til 5 stig. Þurrt og kalt norðantil framan af degi, en fer að snjóa þar seinnipartinn með minnkandi frosti.“ Spákortið fyrir hádegið.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Austlæg átt 5-13 m/s. Rigning eða slydda með köflum á sunnanverðu landinu og snjókoma í uppsveitum. Hiti 0 til 5 stig. Þurrt og kalt norðantil framan af degi, en fer að snjóa þar seinnipartinn með minnkandi frosti. Á föstudag: Norðlæg átt 5-10 á norðanverðu landinu með dálitlum éljum og frost 0 til 4 stig. Hægari vindur sunnantil, slydda eða rigning og hiti 0 til 4 stig, en úrkomulítið um kvöldið. Á laugardag: Norðanátt, víða 8-13 m/s. Léttskýjað sunnan- og vestanlands, en él á Norður- og Austurlandi. Frost 0 til 5 stig. Hægari vindur, um kvöldið, þurrt veður og herðir á frosti. Á sunnudag: Gengur í suðvestan og vestan 13-20, hvassast norðvestanlands. Rigning eða slydda með köflum á vestanverðu landinu, en þurrt austanlands. Hlýnandi veður. Á mánudag: Vestan- og norðvestanátt og allvíða slydda eða snjókoma um tíma. Þurrviðri á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti kringum frostmark. Á þriðjudag: Norðan og norðvestan 5-10 og lítilsháttar él, en bjartviðri sunnanlands. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira