2022 verði ár batans Heimsljós 3. janúar 2022 16:56 António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Við heiminum blasir aukin fátækt og ójöfnuður að mati aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, biðlar til aðildarríkja að skuldbinda sig til þess að gera árið 2022 að ári endurheimtar og bata eftir erfiðleika og bakslag síðustu ára. „Heimurinn tekur á móti 2022 með það fyrir augum að nú reyni verulega á vonir okkar um framtíðina, því við okkur blasir aukin fátækt og ójöfnuður, ójöfn dreifing bóluefna vegna COVID-19, skortur á skuldbindingum vegna loftslagsbreytinga, áframhaldandi átök, sundrung og upplýsingaóreiða,“ segir Guterres meðal annars í ávarpi sínu. Hann áréttaði þó að allt væru þetta áskoranir sem mannkyn geti staðist ef við skuldbindum okkur til þess að gera árið 2022 að ári batans, fyrir okkur öll. „Bata eftir heimsfaraldurinn, með djarfri áætlun um að bólusetja alla, alls staðar. Efnahagsbata, þar sem vel stæð ríki styðja þróunarríki með fjármögnun, fjárfestingu og niðurfellingu skulda. Bata eftir tortryggni og sundrung, með nýrri áherslu á vísindi, staðreyndir og skynsemi. Bata eftir átök, með samræðum, málamiðlunum og sáttum. Og bata fyrir plánetuna okkar, með loftslagsskuldbindingum sem eru í samræmi við umfang vandans og brýna þörf,“ segir Guterres. Ávarp António Guterres má heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan: Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Mest lesið Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Innlent Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Innlent Metfjöldi sjálfsvígssímtala og hætt við þjónustuskerðingu Innlent Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Erlent Mál Margrétar fyrir opnum tjöldum Innlent Nótt innbrota í Laugardal: „Ömurlegt að það sé verið að fara inn í bílana en vandamálið er stærra“ Innlent Ökumaðurinn hefur gefið sig fram Innlent Útilokað að þeir hafi ekki vitað af efnunum og fá þunga dóma Innlent Gagnaþjófnaður til rannsóknar á þremur stöðum Innlent Yfirvöld Mexíkó kæra Google Erlent
António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, biðlar til aðildarríkja að skuldbinda sig til þess að gera árið 2022 að ári endurheimtar og bata eftir erfiðleika og bakslag síðustu ára. „Heimurinn tekur á móti 2022 með það fyrir augum að nú reyni verulega á vonir okkar um framtíðina, því við okkur blasir aukin fátækt og ójöfnuður, ójöfn dreifing bóluefna vegna COVID-19, skortur á skuldbindingum vegna loftslagsbreytinga, áframhaldandi átök, sundrung og upplýsingaóreiða,“ segir Guterres meðal annars í ávarpi sínu. Hann áréttaði þó að allt væru þetta áskoranir sem mannkyn geti staðist ef við skuldbindum okkur til þess að gera árið 2022 að ári batans, fyrir okkur öll. „Bata eftir heimsfaraldurinn, með djarfri áætlun um að bólusetja alla, alls staðar. Efnahagsbata, þar sem vel stæð ríki styðja þróunarríki með fjármögnun, fjárfestingu og niðurfellingu skulda. Bata eftir tortryggni og sundrung, með nýrri áherslu á vísindi, staðreyndir og skynsemi. Bata eftir átök, með samræðum, málamiðlunum og sáttum. Og bata fyrir plánetuna okkar, með loftslagsskuldbindingum sem eru í samræmi við umfang vandans og brýna þörf,“ segir Guterres. Ávarp António Guterres má heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan: Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Innlent Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Innlent Metfjöldi sjálfsvígssímtala og hætt við þjónustuskerðingu Innlent Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Erlent Mál Margrétar fyrir opnum tjöldum Innlent Nótt innbrota í Laugardal: „Ömurlegt að það sé verið að fara inn í bílana en vandamálið er stærra“ Innlent Ökumaðurinn hefur gefið sig fram Innlent Útilokað að þeir hafi ekki vitað af efnunum og fá þunga dóma Innlent Gagnaþjófnaður til rannsóknar á þremur stöðum Innlent Yfirvöld Mexíkó kæra Google Erlent
Nótt innbrota í Laugardal: „Ömurlegt að það sé verið að fara inn í bílana en vandamálið er stærra“ Innlent
Nótt innbrota í Laugardal: „Ömurlegt að það sé verið að fara inn í bílana en vandamálið er stærra“ Innlent