„Vegna aðstæðna höfum við haft mikinn tíma í stúdíóinu „ Ritstjórn Albúmm.is skrifar 9. janúar 2022 14:00 Bræðratvíeykið omotrack hefur gefið út breiðskífuna one of two sem er draumkennd raf-indie plata sem er samin sem ein heild. Markús and Birkir skipa sveitina Omotrack en þeim skemmtilegt að finna viðfangsefni sem eru hversdagsleg og lætur lítið fyrir sér fara og nota sem innblástur í tónlistarsköpun sína. „Sem dæmi var innblásturinn að texta lagsins head over heels lítið atvik þar sem vinir okkar týndu skóhorni, sem er nú ekki mjög merkilegt, en gaf hugmyndir að textanum sem tjáir tilfinningar eins og óvissu sem verður síðar að mikilli gleði.” - Birkir Allir textarnir hafa meira en eina merkingu. Þeir hafa a.m.k. tvöfalda merkingu segja drengirnir. „Vegna aðstæðna höfum við haft mikinn tíma í stúdíóinu til að prófa okkur áfram með hljóð og hljóðvinnslu, þannig á þessari plötu eru margar tilraunir í gangi. Við veltum t.d. mikið fyrir okkur trommuhljóðunum, hvar þau ættu heima og hvernig þau ættu að hljóma. Við enduðum á því að búa þau flest til frá grunni með hljóðfærum í kring um okkur sem var skemmtilegt og lærdómsríkt ferli.“ - Birkir Til að ýta undir enn sterkari upplifun á tónlist Omotrack hentu kapparnir í myndband við hvert og eitt lag plötunnar. Þessi myndbönd eru sjónræn túlkun á lögunum og hluta af þeim er hægt að sjá á heimasíðu sveitarinnar, omotrack.is/oneoftwo Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Tónlist Mest lesið Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Lífið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlist Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Lífið Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Tónlist Mest lesið Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Lífið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlist Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Lífið Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp