Þekkir andlega kvilla vel Ritstjórn Albúmm.is skrifar 10. janúar 2022 14:32 OCD er fyrsta smáskífan af væntanlegri breiðskífu sem rapparinn Egill Friðrik gefur út undir nafninu Orðljótur. OCD er fyrsta smáskífan af væntanlegri breiðskífu sem rapparinn Egill Friðrik gefur út undir nafninu Orðljótur. Lagið fjallar um andlega kvilla sem Egill þekkir sjálfur vel. Fyrir nokkru síðan brotnaði hann niður og nýtti tækifærið til að skrifa dimman og einlægan texta. OCD er þráhyggju- árátturöskun og stundum geta tímabil þar sem röskunin er í hámarki verið mjög erfitt að fara í gegnum. Hálfgert hugsunar fangelsi. „Ég vil líka einnig tjá mig svona opinberlega um svona málefni vegna þess að ég tel að það sé mikilvægt til að draga úr fordómum gagnvart geðveikum. fleiri eru flóknir en maður heldur og andleg heilsa er ekki minna mikilvæg heldur en líkamleg.” - Egill Friðrik / Orðljótur. Platan kemur út á þessu ári en ekki er komin nákvæm tímasetning. „Ég tek mikinn innblástur frá west coast G fönki og allskonar metal og grunge, þó ég er sjálfur bara aðallega í rappi.“ - Egill Friðrik / Orðljótur Egill samdi lagið, mixaði og samdi taktinn. Einar Vilberg masteraði. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Tónlist Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Lífið Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður Lífið Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Lífið „Hún er í hljóðverinu núna“ Lífið
OCD er fyrsta smáskífan af væntanlegri breiðskífu sem rapparinn Egill Friðrik gefur út undir nafninu Orðljótur. Lagið fjallar um andlega kvilla sem Egill þekkir sjálfur vel. Fyrir nokkru síðan brotnaði hann niður og nýtti tækifærið til að skrifa dimman og einlægan texta. OCD er þráhyggju- árátturöskun og stundum geta tímabil þar sem röskunin er í hámarki verið mjög erfitt að fara í gegnum. Hálfgert hugsunar fangelsi. „Ég vil líka einnig tjá mig svona opinberlega um svona málefni vegna þess að ég tel að það sé mikilvægt til að draga úr fordómum gagnvart geðveikum. fleiri eru flóknir en maður heldur og andleg heilsa er ekki minna mikilvæg heldur en líkamleg.” - Egill Friðrik / Orðljótur. Platan kemur út á þessu ári en ekki er komin nákvæm tímasetning. „Ég tek mikinn innblástur frá west coast G fönki og allskonar metal og grunge, þó ég er sjálfur bara aðallega í rappi.“ - Egill Friðrik / Orðljótur Egill samdi lagið, mixaði og samdi taktinn. Einar Vilberg masteraði. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Tónlist Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Lífið Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður Lífið Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Lífið „Hún er í hljóðverinu núna“ Lífið