Liðsfélagarnir þurftu að hressa Blikann við eftir að hann innsiglaði þrennuna sína Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2022 11:01 Jason Daði Svanþórsson skoraði þrennu í síðasta leik Blika í Lengjubikarnum í ár þrátt fyrir að koma ekki inn á völlinn fyrr en hálftími var eftir. Vísir/Hulda Margrét Leikmenn eru oftast mjög kátir þegar þeir skora annað og þriðja mark sitt í leik en það leit ekki út fyrir það hjá einum efnilegum leikmanni Blika.
Blikinn Jason Daði Svanþórsson bauð upp á varamannaþrennu þegar Breiðablik vann lokaleik sinn í riðlakeppni Lengjubikarsins í fótbolta um helgina. Breiðablik vann þar 3-0 sigur á KV og komust með því í toppsætið. Stjarnan náði hins vegar toppsætinu af þeim með sigri á ÍA í gærkvöldi og fer því í undanúrslitin. Svekktur en var samt að skora.S2 Sport Jason Daði kom inn á sem varamaður eftir klukkutímaleik og staðan var þá enn markalaus. Jason skoraði fyrsta markið sitt á 81. mínútu og kom Blikum síðan í 2-0 tveimur mínútum síðar. Jason skoraði síðan síðasta mark sitt og innsiglaði þrennuna þegar hann fylgdi eftir eigin vítaspyrnu. Jason var nokkuð sáttur með fyrsta markið sitt en viðbrögð hans voru að allt öðrum toga eftir hin tvö mörkin. Eftir annað markið hristi hann hausinn eitthvað óánægður með sjálfan sig þrátt fyrir að hafa leikið laglega á varnarmann KV áður en hann skoraði. Ekki voru viðbrögð hans mikið gleðilegri eftir þriðja markið en þá hafði Jason auðvitað látið verja frá sér vítið. Jason var fljótur að átta sig og kom frákastinu yfir marklínuna. Það þurfti liðsfélaga hana til að hressa hann við og færa honum boltann eins og venjan er hjá þeim sem skora þrennu. Það má sjá mörkin hans Jason og ekki fagnaðarlætin hans hér fyrir neðan. Klippa: Varamannaþrenna Jasons Daða
Besta deild karla Breiðablik Mest lesið Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Golf Finnst það sárt að mæta ekki skilningi eftir barnsburð Sport Algjört hrun Spurs sem er stigi frá fallsæti Enski boltinn „Ekki svo að við séum að setja stein í götu hennar af því hún eignaðist barn“ Sport Valur - Fram | Meistararnir mæta toppliðinu Handbolti Landsleikirnir við Svía ekki í Laugardalshöll Handbolti Sturla hefur átt erfitt með að borða og sofa Sport Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Formúla 1 „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Körfubolti „Þeir geta klárað þetta án mín“ Körfubolti Fleiri fréttir Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Sjá meira