„Þetta gefur okkur þennan kraft sem við þurfum til þess að koma okkar málum á framfæri“ Elísabet Hanna skrifar 25. mars 2022 14:30 Guðfinna Birta Valgeirsdóttir og Eyrún Thelma Jónsdóttir eru í endó samtökunum sem standa fyrir vikunni. aðsend Endóvikan er vitundarvakning sem er haldin í mars ár hvert með mismunandi þemum en í ár er þemað vitundavakning á atvinnumarkaðinum. Guðfinna Birta Valgeirsdóttir er kynningarstýra samtakanna og segir hún meðbyrinn aldrei hafa verið jafn mikinn og í ár.
Skemmtilegast að sjá árangurinn Guðfinna Birta og Eyrún Thelma Jónsdóttir segja í samtali við Vísi að það skemmtilegasta við vikuna sé að sjá árangurinn sem hún skilar. Eyrún er í samtökunum og fyrr í vikunni var hún í viðtali hjá Evu Laufey þar sem hún fór yfir sína vegferð með sjúkdóminn en hún er nýbúin í aðgerð þar sem legið, eggjaleiðarar og leghálsinn var fjarlægður vegna endómetríósu. „Við eigum ennþá langt í land en þetta gefur okkur þennan kraft sem við þurfum til þess að koma okkar málum á framfæri. Annars er alltaf gaman að koma með nýjan söluvarning sem slær í gegn,“ segir Guðfinna og vitnar þar í varninginn sem félagið er að bjóða upp á til styrktar samtakanna. Leg sem gefur puttann Í ár bætti félagið við nýjum varningi, hettupeysum. Eyrún segist einfaldlega ekki geta beðið eftir því að sjá fólk í nýju hettupeysunum en á peysunum er lógó sem Elín María Halldórsdóttir hannaði fyrir samtökin. Á því má sjá leg gefa langa fingurinn en þær segja það endurspegla að einhverju leiti stöðuna fyrir fólkið í samtökunum. View this post on Instagram A post shared by Samto k um Endo metri o su (@endoiceland) Byrjaði fyrir níu árum Endóvikan hófst eftir að Silja Steinunnardóttir, fyrrum formaður endó samtakanna kom í stjórn árið 2013. „Hinar vikurnar hafa t.d verið um endómetríósu og ófrjósemi og í fyrra var yfirskriftin „er barnið þitt með endómetríósu?”. Í ár er fókusinn á atvinnurekendur þar sem skilningur atvinnurekenda getur verið mismikill þegar kemur að endómetríósu,“ segja þær um þemað í ár. Þær segja oft vera vanþekking hjá atvinnurekendum og vinnuveitendum um sjúkdóminn. Því vilja samtökin breyta með því að fræða. View this post on Instagram A post shared by Samto k um Endo metri o su (@endoiceland) Ráðstefna með sérfræðingum Í næstu viku standa samtökin fyrir ráðstefnu sem fer fram þann 28. mars og er hún byggð upp með erlendum læknum og sérfræðingum sem sérhæfa sig í endómetríósu. „Það er virkilega ánægjulegt að segja frá því að þeir koma til landsins og halda erindin í raunheimum,“ segja þær og bæta við að gleðin leynir sér ekki. Þar koma meðal annars Dr. Wendy Bingham sem er stofnandi og framkvæmdastjóri góðgerðasamtakanna EPNR, Dr. Jón Ívar Einarsson sem er sérfræðingur á sínu sviði, Lone Hummelshoj sem er heimsþekkt sem alþjóðlegur talsmaður endómetríósu og Konstantinos Kyriakopoulos sem er grískur kvensjúkdómalæknir og framkvæmdastjóri Director of Centre for Endometriosis. Ráðstefnan er fyrir alla sem vilja kynna sér endómetríósu og umfang hennar en þær segja heilbrigðisstarfsfólkið vera hvað mest aðkallandi að fá á ráðstefnuna enda þörf á fleiri slíkum með þekkingu á sjúkdómnum. View this post on Instagram A post shared by Samto k um Endo metri o su (@endoiceland) Lögfræðingur og kjarnakonur „Ásamt endómetríósu sérfræðingunum höfum við fengið til okkar lögmann til þess að ræða um stöðu endófólks út frá lagarlegu sjónarmiði og svo ætla tvær kjarnakonur að ræða um hvernig endómetríósa hefur haft áhrif á þeirra líf,“ segir Guðfinna. Þær kjarnakonur eru Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir, sem stóð fyrir undirskriftalista sem var afhentur heilbrigðisráðherra fyrr í Endóvikunni og Ingunn Gísladóttir. Áhersla læknanna á ráðstefnunni verður að vekja athygli á að endómetríósa á sér stað á öðrum stöðum en í leginu. Frekari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á heimasíður samtakanna. View this post on Instagram A post shared by Samto k um Endo metri o su (@endoiceland) Gul hús og leg kaffi Fjöldi fyrirtækja kemur að því að styrkja vikuna með því að hafa gul boð á vinnustöðunum, veita beina fjárstyrki, selja vörur þar sem ágóðinn rennur til samtakanna eða lýsa upp byggingarnar sínar í gulu en gulur er alþjóðlegur litur endómetríósu. View this post on Instagram A post shared by Samto k um Endo metri o su (@endoiceland) Byggingar á borð við Skriðuklaustur, Hof Akureyri og Listasafn Akureyrar hafa styrkt samtökin í ár með því að vera gul og glæsileg. Guðfinna og Eyrún segja það afskaplega dýrmætt að fá landsbyggðina með þar sem hún hefur því miður setið á hakanum síðustu ár. „Perlan hefur svo verð okkar helsti stuðningsaðili á höfuðborgarsvæðinu en þar sem hún hefur þann tækjabúnað að lýsa í tvílit og er skreytt úkraínska fánanum ákváðum við ekkert að hrófla við því í ár,“ segja þær um höfuðborgarsvæðið. View this post on Instagram A post shared by MELODIA (@melodia_cafe)
Heilsa Kvenheilsa Tengdar fréttir Biðin getur valdið óafturkræfum skemmdum Sjúklingar fá ekki aðgerðir niðurgreiddar hjá helsta sérfræðingi landsins í endómetríósu og þurfa því að bíða í fleiri mánuði eftir meðferð eða leita lækninga erlendis. Kona sem lenti í þeirri stöðu skorar á íslensk heilbrigðisyfirvöld að nýta sér sérfræðikunnáttuna sem er til staðar og um leið lina þjáningar fjölda sjúklinga. 5. febrúar 2022 23:54 „Ótrúlega lýjandi og þreytandi að vera alltaf í sársauka“ Eyrún Telma Jónsdóttir er nýbúin í aðgerð þar sem legið, eggjaleiðarar og leghálsinn var fjarlægður vegna endómetríósu sem Eyrún hefur glímt við frá því að hún var unglingur. 24. mars 2022 10:31 Stór hópur kvenna með endómetríósu detti reglulega út af vinnumarkaði Stór hópur kvenna með endómetríósu dettur reglulega út af vinnumarkaði þar sem löng bið er eftir þjónustu. Forsvarsmenn samtaka um endómetriósu krefjast úrbóta. 22. mars 2022 22:00 Mest lesið Var orðið að spurningu um líf og dauða Lífið Mömmustrákur skýtur uppvakningum ref fyrir rass Gagnrýni Aron Kristinn orðinn pabbi Lífið Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Lífið Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ Tónlist Komu Balmain Hair Couture í Hagkaup fagnað með glæsilegum viðburði Lífið samstarf Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið Fleiri fréttir Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Michael Madsen er látinn Kvenorkan tók yfir á Garðatorgi Björt og Fannar selja einbýlishús fyrir 90 milljónir Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lykla-Pétur fauk á haf út Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Landsliðsmaður gifti sig í Vík í Mýrdal Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Elta drauminn um hægara líf eftir fjögur ár á Íslandi Sólveig og Halldór gáfu dótturinni nafn Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Fyrst skíði og nú golf Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén Sjá meira
Biðin getur valdið óafturkræfum skemmdum Sjúklingar fá ekki aðgerðir niðurgreiddar hjá helsta sérfræðingi landsins í endómetríósu og þurfa því að bíða í fleiri mánuði eftir meðferð eða leita lækninga erlendis. Kona sem lenti í þeirri stöðu skorar á íslensk heilbrigðisyfirvöld að nýta sér sérfræðikunnáttuna sem er til staðar og um leið lina þjáningar fjölda sjúklinga. 5. febrúar 2022 23:54
„Ótrúlega lýjandi og þreytandi að vera alltaf í sársauka“ Eyrún Telma Jónsdóttir er nýbúin í aðgerð þar sem legið, eggjaleiðarar og leghálsinn var fjarlægður vegna endómetríósu sem Eyrún hefur glímt við frá því að hún var unglingur. 24. mars 2022 10:31
Stór hópur kvenna með endómetríósu detti reglulega út af vinnumarkaði Stór hópur kvenna með endómetríósu dettur reglulega út af vinnumarkaði þar sem löng bið er eftir þjónustu. Forsvarsmenn samtaka um endómetriósu krefjast úrbóta. 22. mars 2022 22:00