Askja hefur hjólasumarið ásamt því að frumsýna nýjan HR-V Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 26. mars 2022 07:01 HR-V Askja umboðsaðili Honda á Íslandi frumsýnir í dag, laugardaginn 26. mars nýjan Honda HR-V Hybrid í Honda salnum á Krókhálsi. Sýningin fer fram á milli klukkan 12 - 16. Nýr Honda HRV er með háþróað Hybrid kerfi.
Nýr Honda HR-V er með 1,5 lítra Hybrid vél sem skilar 131 hestöflum og 253 Nm í togi. Tvinnvélin skilar minna kolefnisspori en áður eða 122 g/km. Hægt er að velja um þrjár mismunandi akstursstillingar, Sport, Normal eða Eco. Viðbragðsþýð aflrásin í HR-V hentar vel við allar aðstæður jafnt í innanbæjarakstri eða á þjóðvegum. Sjálfhlaðandi tvinnvélin skilar umhverfisvænni akstri og dregur úr eldsneytiseyðslu. Aðgengi er gott og þar leikur nítján sentimetra veghæð bílsins stórt hlutverk. Bíllinn er rúmgóður að innan bæði fyrir fólk og farangur og mun rúmbetri en fyrri gerðir HR-V. Hægt er að leggja aftursætin niður mjög auðveldlega og auka þannig enn frekar á farangursrýmið ef þörf er á. Bíllinn er vel búinn staðalbúnaði og hönnun á innra rýminu er fáguð. Honda HR-V Hybrid kemur með fimm ára ábyrgð og innifalin er regluleg þjónusta í þrjú ár. Honda HR-V mun kosta frá 5.390.000 kr. og upp í 6.190.000 kr. fyrir dýrustu útgáfuna. Uppgefin eldsneytisnotkun er 5,4 lítrar á hverjum 100 eknum kílómetrum. HRC Ný Honda mótorhjól sýnd Samhliða frumsýningu á HR-V hybrid mun Bílaumboðið Askja sýna ný Honda mótorhjól og hefja með því formlega hjólasumarið 2022 á laugardaginn kl 12-16 í sýningarsal Honda, Krókhálsi 13. Fyrstu Honda mótorhjólin voru flutt inn af Honda umboðinu árið 1969 og hafa skipað stóran sess í hjörtum mótorhjólafólks allt frá upphafi. Honda mótorhjólin eru þekkt fyrir gæði, áreiðanleika, fallega hönnun og fjölbreytt notagildi en ekki síst fyrir þá ánægju sem þau veita notendum.
Vistvænir bílar Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Innlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Innlent „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Innlent Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg Innlent