Haukar tóku Blika og Keflavík vann nágrannaslaginn gegn Njarðvík Atli Arason skrifar 30. mars 2022 21:36 Daniela Wallen í leik gegn Haukum fyrr á tímabilinu. Keflavík og Haukar unnu bæði leiki sína í kvöld. Bára Dröfn Kristinsdóttir Deildarkeppni Subway-deild kvenna er lokið með þremur leikjum. Haukarnir sigruðu Breiðablik í Ólafssal, 74-65 á meðan Keflavík vann erkifjendur í Njarðvík með 10 stigum við Sunnubraut, 72-62.
Lovísa Björt Henningsdóttir, leikmaður Hauka, var nær óstöðvandi gegn Breiðablik en Lovísa gerði 31 stig í sigri liðsins. Lovísa tók einnig fjögur fráköst og gaf eina stoðsendingu og endaði leikinn með 25 framlagspunkta. Hjá Blikum var Isabella Ósk Sigurðardóttir best með 12 stig, 12 fráköst og tvær stoðsendingar sem gera 21 framlagspunkt. Breiðablik endar deildina í sjöunda og neðsta sæti deildarinnar með 12 stig. Haukar verða hins vegar í þriðja sætinu og mæta Val í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Valur vann Fjölni í Grafarvoginum en Fjölniskonur eru deildarmeistarar í ár. Í Keflavík unnu heimakonur sinn fjórða leik í röð þegar þær tóku Njarðvík með 10 stigum. Eins og stundum áður var Aliyah Collier frábær í liði Njarðvíkur en hún setti niður 34 stig, tók 15 fráköst og gaf fjórar stoðsendingar, 38 framlagspunktar. Daniela Wallen var best í liði Keflavíkur en hún gerði 22 stig ásamt því að taka 17 fráköst og gefa þrjár stoðsendingar sem gerir 29 framlagspunkta. Njarðvíkingar enda deildina í fjórða sæti og fá deildarmeistara Fjölnis í fyrsta leik úrslitakeppninnar. Það verður hins vegar enginn úrslitakeppni í Keflavík í ár þar sem Keflvíkingar enduðu í fimmta sæti, sex stigum á eftir Njarðvík.
Subway-deild kvenna Haukar Breiðablik Keflavík ÍF UMF Njarðvík Mest lesið Fimm ástæður þess að Ísland vinni EM Fótbolti „Auðvitað á þetta að vera svona hjá KSÍ líka“ Fótbolti Jón Daði skrifar undir hjá Selfossi Íslenski boltinn „Tilhugsunin um að spila fyrir annað félag sat bara ekki rétt í mér“ Íslenski boltinn Opnaði Instagram og sá að hún væri á leiðinni á EM í Sviss Fótbolti City úr leik eftir sjö marka spennutrylli gegn Al-Hilal Fótbolti Efaðist en lagði allt í sölurnar fyrir EM: „Mörg gleðitár“ Fótbolti „Ef þú vilt ekki vera hérna, farðu bara“ Fótbolti Biðla til FIFA um að hætta við miðdagsleiki af ótta við hita Fótbolti EM í dag: Ánægjuleg truflun og þungu fargi létt Fótbolti Fleiri fréttir Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Sjá meira