Fyrirsætan Fiametta Cicogna birti skemmtilegar myndir á Instagramsíðu sinni frá ferðinni og leikkonan Matilde Lojacono Gioli einnig. Með í för voru fjallagarpurinn Hervé Barmasse, eigendur Skóframleiðandans SCARPA og blaðamenn en tilefni ferðarinnar var 40 ára afmæli SCARPA á Íslandi. Halldór Hreinsson, eigandi Fjallakofans skipulagði ferðina með sínu fólki og ferðaðist með hópinn um Suðurlandið.

„Við vorum svo heppin að veðurguðirnir sneru algjörlega við allri rigningarspá og skörtuðu sínu fegursta allan tímann, sól og heiðríkja, nema smá súld og þoka á Mýrdalsjökli en það jók bara hughrifin enn meira,“ segir Halldór en hópurinn heimsótti meðal annars Gullfoss og Geysi, Seljalandsfoss og Skógarfoss, Vík í Mýrdal og Reynisfjöru, skoðaði íshella og gekk á fjallaskíðum á Mýrdalsjökli.

„Það gekk allt upp. Í Reynisfjöru fengum við óvænta lundaflugsýningu um kvöld. Við vorum hluti hópsins ein í fjörunni en það hafði verð skyndiákvörðun að skjótast þangað,“ segir Halldór. Hópurinn hafi verið yfir sig ánægður með ferðina og ekki síst fararstjórnina. „Fiammetta sagði við mig aftur og aftur, „Halldór - they don´t make men like you anymore!“ Það má segja að það hafi verið hápunktur ferðarinnar,“ fyrir mig segir hann sposkur.
SCARPA er ítalskt fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var 1938 í Asolo við rætur Dolomita fjallanna. Scarpa framleiðir hágæða gönguskó, klifur-, hlaupa-, fjallaskíða- og götuskó sem njóta mikilla vinsælda.
FJALLAKOFINN er með sérstaka SCARPA daga í gangi og allir Scarpa skór eru á sérstökum afslætti í Fjallakofanum fram yfir uppstigningardaginn nk.
Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir úr ferðinni og myndband:




