Myndband: Kynning á Hyundai Ioniq 5 með Ísland í aðalhlutverki Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 6. júlí 2022 07:01 Hyundai Ioniq 5 í íslenskri náttúru. Auglýsingatökulið á vegum Hyundai kom hingað til lands í apríl og tók upp kynningarmyndband fyrir Hyundai Ioniq 5. Myndbandið sýnir fallegt landslag Íslands, náttúru og dýralíf og fylgir fréttinni.
Þegar kom að markaðssetningu valdi Hyundai að sýna Ioniq 5 á þremur stöðum í heiminum sem hafa hver á sinn hátt búið yfir áskorunum fyrir rafbíla sem sigrast þurfti á. Ísland er einn þessara staða sem Hyundai valdi. Það má leiða líkum að því að töluverð landkynning sé fólgin í myndbandi sem þessu. Hyundai skilgreinir IONIQ 5 sem einstakan bíl í þéttbýli fyrir það hversu rúmgóður hann er, hlaðinn nýjustu tækni og þægindum og umfram allt góðu öryggi fyrir bæði ökumann og farþega og í raun umhverfið allt. Ein ástæða þess að Ioniq 5 var kjörinn heimsbíll ársins var líka vegna möguleikanna sem hann býr yfir og gera kleift að fara hvert á land sem er; á vit ævintýranna til að njóta þess sem náttúran býður upp á. Þar kemur til mikil drægni og fullkomin hleðslutækni sem gerir kleift að hlaða Ioniq 5 í 80% á aðeins 18 mínútum.
Vistvænir bílar Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent