Frábær Gandri, FH í klandri og Þórarinn á óþarfa flandri Sindri Sverrisson skrifar 4. ágúst 2022 08:31 Guðmundur Andri Tryggvason skoraði bæði mörk Vals gegn FH í gærkvöld. Stöð 2 Sport Portúgalinn Tiago Fernandes og Guðmundur Andri Tryggvason skoruðu tvennu hvor um sig í gærkvöld þegar tveir leikir fóru fram í Bestu deildinni í fótbolta. Öll mörkin úr leikjunum má nú sjá hér á Vísi. Guðmundur Andri, stundum kallaður Gandri, skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri Vals gegn FH-ingum og hefur þar með skorað fjögur mörk í sumar. FH-ingar eru nú í enn verri stöðu en áður, með 11 stig eftir 15 leiki og aðeins stigi fyrir ofan Leikni sem er í fallsæti og á leik til góða. Valur er hins vegar í 5. sæti með 24 stig og blandaði sér í baráttuna um Evrópusæti. Klippa: Valur 2-0 FH Tiago skoraði tvö glæsileg mörk fyrir Fram, með sitt hvorum fætinum, í 2-2 jafnteflinu gegn Stjörnunni í Úlfarsárdal. Emil Atlason hafði komið Stjörnunni yfir á 4. mínútu, með sínu tíunda marki í sumar, en Tiago jafnaði strax metin og nýtti sér svo slæm mistök Þórarins Inga Valdimarssonar til að koma Fram í 2-1 þegar enn var aðeins korter liðið af leiknum. Það var svo Guðmundur Baldvin Nökkvason sem jafnaði metin á 84. mínútu, með stórglæsilegu skallamarki, eftir hornspyrnu Óskars Arnar Haukssonar. Þetta var annað mark hins 18 ára Guðmundar Nökkva í sumar. Klippa: Fram 2-2 Stjarnan Mark Guðmundar Nökkva dugði til að halda Stjörnunni einu stigi fyrir ofan Val í 4. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir KA sem er í 3. sæti. Fram er í 8. sæti með 18 stig líkt og Keflavík sem er sæti ofar, þremur stigum á eftir KR. Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér. Besta deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira
Guðmundur Andri, stundum kallaður Gandri, skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri Vals gegn FH-ingum og hefur þar með skorað fjögur mörk í sumar. FH-ingar eru nú í enn verri stöðu en áður, með 11 stig eftir 15 leiki og aðeins stigi fyrir ofan Leikni sem er í fallsæti og á leik til góða. Valur er hins vegar í 5. sæti með 24 stig og blandaði sér í baráttuna um Evrópusæti. Klippa: Valur 2-0 FH Tiago skoraði tvö glæsileg mörk fyrir Fram, með sitt hvorum fætinum, í 2-2 jafnteflinu gegn Stjörnunni í Úlfarsárdal. Emil Atlason hafði komið Stjörnunni yfir á 4. mínútu, með sínu tíunda marki í sumar, en Tiago jafnaði strax metin og nýtti sér svo slæm mistök Þórarins Inga Valdimarssonar til að koma Fram í 2-1 þegar enn var aðeins korter liðið af leiknum. Það var svo Guðmundur Baldvin Nökkvason sem jafnaði metin á 84. mínútu, með stórglæsilegu skallamarki, eftir hornspyrnu Óskars Arnar Haukssonar. Þetta var annað mark hins 18 ára Guðmundar Nökkva í sumar. Klippa: Fram 2-2 Stjarnan Mark Guðmundar Nökkva dugði til að halda Stjörnunni einu stigi fyrir ofan Val í 4. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir KA sem er í 3. sæti. Fram er í 8. sæti með 18 stig líkt og Keflavík sem er sæti ofar, þremur stigum á eftir KR. Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Besta deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira