Tesla opnar fimm Supercharger stöðvar fyrir aðra en Tesla eigendur Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 15. september 2022 07:01 Tesla hleðslustöð. Vilhelm Gunnarsson Tesla hefur nú hafið tilraunaverkefni sem felur í sér að opna á nokkrar Supercharger hraðhleðslustöðvar fyrir notendur og eigendur rafbíla af öðrum tegundum en Tesla. Tesla eigendur geta haldið áfram að nota þessar stöðvar eins og þeir hafa alltaf gert og Tesla mun fylgjast náið með nýtingu á hverri stöð.
Boðið er upp á tvær leiðir til að gerast viðskiptavinur fyrir aðra en Tesla eigendur. Hægt er að velja að greiða fast mánaðargjald (1800 kr. á Íslandi) í appinu til að fá aðgang að lægra hleðsluverði pr. kWh.. Þá er verðið það sama og Tesla eigendur greiða (að meðaltali 61,60 kr. pr. kWh. á Íslandi). Þeir sem kjósa ekki að greiða fast mánaðargald geta hlaðið en greiða hærra verð pr. kWh. (79 kr. pr. kWh. á Íslandi). Verðin á stöðvunum eru mismunandi eftir landsvæðum en allar upplýsingar um verð á hleðslu má finna í Tesla appinu. Þriðja kynslóð af ofurhleðslutengi (e. Supercharger). Meðal þess sem kom fram í tilkynningunni frá Tesla var yfirferð yfir sögu Supercharge stöðvanna. „Í desember 2019, opnaði Tesla af fyrstu Supercharger hraðhleðslustöðina á Íslandi. Í dag eru stöðvarnar alls 8 talsins með hleðslutengi fyrir 35 bifreiðar og eru staðsettar hringinn í kringum landið. Sumarið 2021 kláruðum við að tengja hringveginn sem gerir ferðalög á rafmagnsbifreiðum enn einfaldari og þægilegri. Í nóvember 2021 hófum við tilraunaverkefni með því að opna hluta af hraðahleðslustöðvunum okkar erlendis og í dag opnum við hluta af stöðvunum okkar hér á Íslandi til að styðja markmið okkar um að flýta fyrir umskiptum heimsins yfir í notkun á sjálfbærri orku. Í dag munum við opna valdar fimm stöðvar á Akureyri, Egilsstöðum, Hvolsvelli, Höfn og Kirkjubæjarklaustri fyrir öllum eigendum rafbíla. Tesla Model 3 á hleðslubás við Staðarskála. Sem er ekki ein af þeim stöðvum sem er opin öðrum en Tesla eigendum. Þessar fimm stöðvar sem innihalda hleðslutengi fyrir 20 bifreiðar eru hluti af tilraunaverkefninu okkar á Íslandi, sem gerir það að einu stærsta hraðhleðsluneti landsins. Þessi stækkun styrkir stöðu Supercharger hraðhleðslunets Tesla sem er stærsta hraðhleðslunet (> 150 kW) í Evrópu. Greiður aðgangur að stóru, þægilegu og áreiðanlegu hraðhleðsluneti er mikilvægt fyrir notkun rafbíla og til að mæta þeirri þróun í fjölgun þeirra á götum landsins. Einmitt þess vegna höfum við, frá því að við opnuðum fyrstu Supercharger hraðhleðslustöðina okkar árið 2012, verið staðráðin í hraðri stækkun netsins. Í dag rekum hraðhleðslunet þar sem 35.000 bifreiðar geta hlaðið á sama tíma.“
Vistvænir bílar Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Barist á hafi úti Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent