Á vef Veðurstofunnar segir að hitinn á landinu verði á eitt til tíu stig, mildast syðst.
Á morgun kemur lægð inn á Grænlandshaf. Henni fylgir suðaustan kaldi eða stinningskaldi og rigning með köflum eða skúrir. Hiti 3 til 9 stig yfir daginn. Norðaustanlands verður heldur svalara og þar gæti úrkoman fallið sem slydda.

Á sunnudag verður lægðin við austurströndina og dýpkar ört. Þá er útlit fyrir að það gangi í norðan hvassviðri eða storm með mikilli slyddu eða snjókomu á Norður- og Austurlandi. Þar verður ekkert ferðaveður ef að líkum lætur. Sunnanlands verður úrkomulítið en þar gæti samt sem áður orðið mjög hvasst, til að mynda undir Vatnajökli.
Það er enn nokkur breytileiki í spám varðandi þetta veður, t.d. benda nýjustu spár til þess að vesturhluti landsins sleppi betur en útlit var fyrir í gær. Það gæti hins vegar hæglega breyst aftur og er fólk hvatt til að fylgjast vel með veðurspám.

Gular viðvaranir um helgina
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna storms á norðurhluta landsins um helgina.
Vestfirðir
- 9. okt. kl. 06:00 til 10. okt. kl. 03:00. Norðan 18-23 m/s með talsverðri slyddu eða snjókomu, einkum norðantil. Talsverðar líkur á slydduísingu. Mikilvægt er að ganga vel frá utandyra og koma búfénaði í skjól. Miklar líkur á að færð spillist, einkum á fjallvegum. Ekkert ferðaveður.
Strandir og Norðurland vestra
- 9. okt. kl. 10:00 til 10. okt. kl. 04:00. Norðan 18-25 m/s með mikilli úrkomu, slyddu við ströndina, annars snjókomu. Miklar líkur eru á slydduísingu á innviði og vegi. Fólki er bent á að ganga vel frá utandyra og koma búfénaði í skjól. Miklar líkur á að færð spillist og ekkert ferðaveður á meðan viðvörunin er í gildi.
Norðurland eystra
- 9. okt. kl. 10:00 til 10. okt. kl. 10:00. Norðan 18-25 m/s með mikilli úrkomu, slyddu við ströndina, annars snjókomu. Miklar líkur eru á slydduísingu á innviði og vegi. Fólki er bent á að ganga vel frá utandyra og koma búfénaði í skjól. Miklar líkur á að færð spillist og ekkert ferðaveður á meðan viðvörunin er í gildi.
Austurland að Glettingi
- 9. okt. kl. 14:00 til 10. okt. kl. 12:00. Norðvestan 15-25 m/s með mikilli rigningu eða slyddu, en snjókomu á fjallvegum. Miklar líkur eru á slydduísingu á innviði og vegi. Fólki er bent á að ganga vel frá utandyra og koma búfénaði í skjól. Miklar líkur á að færð spillist og ekkert ferðaveður á meðan viðvörunin er í gildi.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag: Suðaustan og austan 8-15 m/s og rigning eða skúrir, en sums staðar slydda norðaustanlands. Yfirleitt hægari vindur eftir hádegi. Hiti 1 til 9 stig, svalast norðaustantil.
Á sunnudag: Gengur í norðan og norðvestan 18-25 m/s með talsverðri eða mikilli slyddu eða snjókomu, en rigning á láglendi norðaustantil. Mun úrkomuminna sunnanlands. Hiti 0 til 7 stig, mildast austast.
Á mánudag: Minnkandi norðvestanátt og dregur úr ofankomu, en þurrt á Suður- og Vesturlandi. Hiti um og yfir frostmarki.
Á þriðjudag: Suðaustan- og austanátt og fer að rigna, en lengst af úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hlýnar talsvert.
Á miðvikudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og rigning eða skúrir. Hiti 3 til 8 stig.
Á fimmtudag: Norðaustlæg átt og þurrt að kalla, en dálítil slydduél fyrir norðan. Kólnar í veðri.