Húsasmiðjan byggir upp græna innviði og dregur enn frekar úr kolefnisfótspori Húsasmiðjan 12. október 2022 08:47 Emilía Borgþórsdóttir, verkefnisstjóri umhverfis- samfélagsmála hjá Húsasmiðjunni Húsasmiðjan hefur sett sér metnaðarfull markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í allri starfsemi fyrirtækisins. Hluti af þeim markmiðum er að að skipta út jarðeldsneyti í bílaflota fyrirtækisins í umhverfisvæna orkugjafa. „
Við vinnum stöðugt að því að auka hlutfall grænna vara hjá fyrirtækinu enda sjáum við vaxandi eftirspurn eftir þeim hjá viðskiptavinum. Við trúum því að séum að stíga stór og leiðandi skref í byggingargeiranum með orkuskiptum og auknum áherslum á umhverfismál,“ segir Emilía Borgþórsdóttir, verkefnisstjóri umhverfis- samfélagsmála hjá Húsasmiðjunni. Nýr rafmagnsvörubíll Kolefnispor timburs með því lægsta sem þekkist hér á landi Umhverfisvænar vörur aukist um 50% Nýr rafmagnsvörubíll Húsasmiðjan hefur nú fest kaup á nýrri rafknúinni Volvo vöruflutningabifreið frá Brimborg sem ganga mun fyrir rafmagni og er gert ráð fyrir að bifreiðin verði kominn í notkun snemma á næsta ári. Hún verður með fyrstu rafmagnsvörubílum landsins. Það má gera ráð fyrir að þessi vöruflutningabifreið keyri um 2.000 km á mánuði að jafnaði og með því er komið í veg fyrir losun gróðurhúsalofttegunda upp á 1,3 tonn koltvísýringsígilda (CO2e) eða rúmlega 15 tonn á ári. Kolefnisfótspor timburs aldrei verið lægra Með nýju timbursölunni við Kjalarvog hefur fyrirtækið náð að minnka heildar kolefnisfótspor timburs afhent á byggingarstaði á höfuðborgarsvæðinu enn frekar þar sem timbrinu er ekið beint úr skipi við uppskipunarhöfn í vöruhús og timbursölu með rafmagnslyfturum, þaðan sem timbrið fer svo í flestum tilvikum beint til viðskiptavina en ekki á millilagera. Húsasmiðjan stefnir að því að megnið af flutningum á timbri innanlands verði með flutningabílum sem ganga fyrir rafmagni. Allt timbur sem selt er í Húsasmiðjunni er FSC og PEFC vottað sem þýðir að það kemur úr sjálfbærum skógum þar sem vist- og lífkerfi skógarins er gætt. Með þessu móti verður kolefnisfótspor timburs frá Húsasmiðjunni með því lægsta sem þekkist hér á landi. Grænar vörur í sífelldri aukningu Árið 2021 jukust vörur sem falla undir skilgreininguna grænar vörur og seldar eru í Húsasmiðjunni um tæp 50% eða úr 2.500 í 3.700. Þessar vörur eru sérstaklega vottaðar með viðurkenndum vottunum eins og Svaninum, Evrópublóminu og Bláa englinum.
Orkumál Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Greiðsluáskorun Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sjá meira