Aðalkeppni hausttímabilsins hefst í dag, en upphitun fyrir fyrsta dag tímabilsins hefst á slaginu klukkan 13:30 á Stöð 2 eSport.
Íslensku liðin sem taka þátt í Ljósleiðaradeildinni geta unnið sér inn þátttökurétt á mótaröðinni með sigri í deildinni hér heima og fyrir tæpum mánuði tóku Ljósleiðaradeildarmeistarar Dusty þátt í undankeppninni. Liðinu tókst þó ekki að vinna sér inn sæti á mótinu, en stefnir að öllum líkindum hærra á komandi árum.
Dagskrá dagsins á BLAST Premier er þétt og eins og áður segir hefst upphitun nú strax klukkan 13:30.
Klukkan 14:30 mæta franska liðið Team Vitality og kínverska liðið TYLOO til leiks, en franska liðið tryggði sér sigur í ESL Pro League nú fyrir skemmstu.
Klukkan 17:30 er svo komið að viðureign Astralis frá Danmörku og Eternal Fire frá Tyrklandi. Danska liðið Astralis mætir til leiks með mikla reynslu af BLAST-mótaröðinni, enda tryggði liðið sér sigur á BLAST árið 2019.
Seinasta viðureign dagsins hefst svo klukkan 20:30 þegar Complexity frá Bandaríkjunum mætir brasilíska liðinu Sharks eSports, en Complexity tryggði sér meðal annars sigur á BLAST vorið 2020.
Allar viðureignir átta liða úrslitana í dag verða að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport. Undanúrslitin fara svo fram á föstudag og laugardag áður en úrslitin sjálf fara fram á sunnudaginn.