Rjúpnaveiðin fór ágætlega af stað Karl Lúðvíksson skrifar 3. nóvember 2022 09:57 Hvar er hún þessi rjúpa? Þegar þessi mynd var tekin, fyrir tveimur árum, voru aðstæður aðrar en nú eru: Snjór yfir öllu og rjúpan þá dreifð. visir/vilhelm Rjúpnaveiðitímabilið hófst á þriðjudaginn og það er ekki annað að heyra en að mörgum rjúpnaskyttum hafi gengið vel.
Nokkrir af þeim sem Veiðivísir hefur heyrt frá áttu prýðisgóðan dag á fjöllum og við vitum nú þegar af nbokkrum sem eru búnir að ná í jólamatinn. Eins höfum við heyrt af töluverðum fjölda sem náði einni til fjórum rjúpum og eru menn almennt bara sáttir við það svona á fyrsta degi. það er nokkuð víst að langflestir ganga á fjöll og hætta þegar jólamatnum er náð en hvort það sé innan þess magns sem tilmæli Umhverfisstofnunar eru skal ósagt látið. Líklega eru flestir að reyna ná sér í tíu til fimmtán rjúpur en það eru ekki allir sem ná því. Það er engu að síður talað um að það sjáist mun meira af rjúpu en í fyrra og setja margir spurningarmerki við aðferðafræðina sem virðist vera notuð til að meta stærð stofnsins. Það er vonandi að sem flestir náí í jólamatinn en ef það klikkar þá má benda á að rjúpu er hægt að fá bæði bringur og heilar í Bónus, Hagkaup og já líklega vel flestum verslunum. Bara ef.....
Skotveiði Mest lesið Skemmtileg og fræðandi veiðibók Veiði Skagaheiðin farin að gefa vel Veiði Veiði hefst í Veiðivötnum 18.júní Veiði Lax eða sjóbirtingur? Veiði Veiðimenn óhressir með hækkun í Veiðivötnum Veiði 883 urriðar á land í Litla Sjó á einni viku Veiði 7 komnir á land á fyrstu vakt í Laxá í Kjós Veiði Mokveiði í heiðarvötnunum Veiði Umgengni við suma veiðistaði afleit Veiði Veiddi 34 punda lax við Tannastaði Veiði