Anubis kortið er nýkomið inn í atvinnuleikinn í CS:GO og voru lið Ármanns og Viðstöðu þau fyrstu til að keppa í því í Ljósleiðaradeildinni.
Lið Ármanns hafði betur í hnífalotunni. Fjórföld fella frá Hundza tryggði Ármanni réttinn á að velja sér hlið í fyrri hálfleik og kaus liðið að byrja í sókn. Í fyrstu tveimur lotunum tókst Viðstöðu að aftengja sprengjuna en Ármann komst fljótlega upp á lagið með að komast í gegnum vörnina og vinna sex lotur í röð. Lykillinn var að ná að fella leikmenn Viðstöðu snemma í lotunum og hreinsa síðan upp.
Upp úr miðjum hálfleik var lið Viðstöðu þó farið að læra betur á kortið og krækti í fimm af síðustu sjö lotunum.
Staðan í hálfleik: Ármann 8 – 7 Viðstöðu
Í síðari hálfleik var komið að Ármanni að aftengja sprengjuna í skammbyssulotunni og Viðstöðu að leggja upp í langa runu. Mozar7 og Allee skiptu vappahlutverkinu bróðurlega á milli sín sem skilaði sér í fjölmörgum fellum og greiðri leið um kortið. Þannig komst lið Viðstöðu í stöðuna 12–9.
Ármann sneri þá vörn í sókn, jafnaði og komst aftur yfir með því að nýta sér hver einustu mistök sem lið viðstöðu gerði og var það Ofvirkur á vappanum sem lék stórt hlutverk í því.
Viðstöðumenn réttu þó úr kútnum undir lokin og innsiglaði Allee sigurinn í 30. lotu með þrefaldri fellu á vappanum.
Lokastaða: Ármann 14 – 16 Viðstöðu
Næstu leikir liðanna:
- Viðstöðu – Dusty, þriðjudaginn 6/12, kl. 19:30
- Ármann – Breiðablik, fimmtudaginn 8/12, kl. 20:30
Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.