Kærustuparið mætti á hækjum á BBC hófið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2022 11:31 Beth Mead og Vivianne Miedema mættu báðar á hækjum á hófið en Beth fór síðan heim með verðlaun. Getty/Anthony Devlin Knattspyrnukonurnar Vivianne Miedema og Beth Mead eru ekki bara tvær af bestu framherjum heims því þær eru líka í sambandi.
Það sem meira er að þær þurfa báðar að ganga um á hækjum þessa dagana eftir að hafa meiðst illa á hné í leikjum með Arsenal. Landsliðsframherjarnir mættu því báðar á hækjum á BBC hófið í gær þar sem verðlaunað var fyrir íþróttaárið 2022 í Bretlandi. Beth Mead var síðan kjörin íþróttamaður ársins hjá BBC og enska kvennalandsliðið í fótbolta lið ársins. Beth Mead var kjörin besti leikmaðurinn á EM í Englandi síðasta sumar auk þess að verða markadrottning mótsins þegar þær ensku urðu Evrópumeistarar. Vivianne Miedema hafði orðið Evrópumeistari með Hollendingum á EM 2017 þar sem hún skoraði meðal annars tvívegis í úrslitaleiknum. Mead sleit krossband í leik með Arsenal á móti Manchester United á Emirates leikvanginum í nóvember. Miedema sleit síðan líka krossband í leik Arsenal á móti Lyon í Meistaradeildinni fyrr í þessum mánuði. Mead var búin að skora 5 mörk í 7 leikjum með Arsenal á 2022-23 tímabilinu og 13 mörk í 18 landsleikjum með Englandi á árinu 2022. Miedema var búin að skora 7 mörk í 15 leikjum með Arsenal á 2022-23 tímabilinu og 10 mörk í 11 landsleikjum með Hollandi á árinu 2022. View this post on Instagram A post shared by Barclays WSL (@barclayswsl)
Enski boltinn Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira