Rekið hótel í þrjá áratugi og aldrei verið jafn erfitt að finna starfsfólk og í ár
![Kristófer Oliversson formaður Félags fyrirtækja í hótel-og gistiþjónustu segir bráðvanta fólk í ferðaþjónustugeirann.](https://www.visir.is/i/CA956C271E941C4E14B35869270D96F66A346CAE1FCD1D839D6065FEAE446AE4_713x0.jpg)
Stærsta áskorunin fyrir fyrirtæki í hótel- og gistiþjónustu eftir Covid-19 heimsfaraldurinn var að fá starfsfólk í þann fjölda starfa sem reksturinn kallar á. „Ég og mín fjölskylda höfum verið í þessum rekstri í þrjá áratugi og sjaldan eða aldrei reynst jafn erfitt að finna fólk til starfa og í ár,“ segir Kristófer Oliversson, framkvæmdastjóri Center hotels og formaður Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu.