Lægri kostnaður með nýrri greiðslulausn Vodafone 17. janúar 2023 15:02 „Margmenn stofa getur hæglega verið að greiða hátt í hundrað þúsund í kostnað við posana á mánuði en gjaldið af deiliposanum er einn tíundi af því," segir Atli Már Sigurðsson. Vilhelm „Þetta er miklu hagstæðara fyrir okkur. Við vorum áður með fjóra posa í gangi hér á stofunni og kostnaðurinn við þennan nýja er margfalt minni,“ segir Atli Már Sigurðsson, annar rekstraraðila hárgreiðslustofunnar Hárbær en stofan tók nýlega í gagnið deiliposa frá Vodafone. Deiliposinn er ný greiðslulausn þar sem allt að níu seljendur geta verið saman með einn posa og deilt kostnaði og það getur munað ansi miklu að sögn Atla. „Margmenn stofa getur hæglega verið að greiða hátt í hundrað þúsund í kostnað við posana á mánuði en gjaldið af deiliposanum er einn tíundi af því. Posinn gerir sig svo upp sjálfkrafa á nóttunni, við þurfum ekkert að spá í það. Hann er fljótvirkur og miklu betri græja en það sem við vorum með áður. Svo er afgreiðsluborðið okkar miklu snyrtilegra svona,“ bætir Atli við. „Við vorum áður með fjóra posa í gangi hér á stofunni og kostnaðurinn við þennan nýja er margfalt minni. Svo er afgreiðsluborðið okkar miklu snyrtilegra svona." Íris Sveinsdóttir hárgreiðslumeistari og eigandi Hárbæjar tekur í sama streng. Starfsemi stofunnar sé fjölbreytt en þar vinna bæði hárgreiðslumeistarar og förðunarfræðingar. Framundan eru spennandi verkefni, meðal annars hár og förðun fyrir Eurovision. „Ég kenni líka í Make up stúdíói Hörpu Kára og hún bað mig um að verða „Head of Hair“ í Eurovision teyminu. Ég sagði að sjálfsögðu „já“,“ segir Íris og mun Hárbær sjá um hár keppenda. Íris er öllu vön þegar kemur að hárgreiðslu á stórum viðburðum. Íris Sveins, eigandi Hárbæjar hefur annarst hárgreiðslu á stórum viðburðum víða um heim. „Þegar ég bjó í Þýskalandi vann ég mikið af svona verkefnum um allan heim, hársýningar fyrir Paul Mitchell, Amika, Oolaboo og Davines og tískusýningar NYFW svo eitthvað sé nefnt svo að þetta er kannski ekkert nýtt fyrir mig en afskaplega skemmtilegt að vinna svona verkefni hérna heima,“ segir Íris. Hárbær hefur verið starfandi frá árinu 1977, fyrst á Laugavegi 168 og nú í Stórholti 1. Segja má að Íris hafi alist upp á hárgreiðslustofu en pabbi hennar og afi voru báðir hárskerar, Sveinn Árnason og Ari Guðjónsson. „Þeir unnu saman á Njálsgötu 58 þegar ég var barn og ég gat setið stundunum saman og fylgst með þeim vinna. Ég klippti mitt fyrsta módel þegar ég var 12 ára og þar á undan var ég dugleg að klippa dúkkurnar mínar, sem flestar voru orðnar hárlausar. Þeir stofnuðu Hárbæ á sínum tíma og fastakúnnarnir þeirra koma margir enn á stofuna til okkar. Það er yndislegt að tengjast þannig pabba og afa,“ segir Íris, það hafi ekki verið flókið að velja sér framtíðarstarf. 19 ára var hún komin með sveinsprófið og var í íslenska landsliðinu í hárskurði. „Það er mikill metnaður hér inni á stofunni,“ segir Atli. „Sara sem vinnur hér í Hárbæ er snillingur þegar kemur að barnaklippingum og Nas sérhæfir sig í herraklippingum og tekur viðskiptavini í klippingu beint af götunni. Hann hefur starfað í Hárbæ í 7 ár. Íris sér einnig um hárið hjá Sinfó og sjálfur er ég menntaður förðunarfræðingur. Verkefnin hjá okkur í Hárbæ eru því ansi fjölbreytt og spennandi,“ segir Atli að lokum. Nánar um deiliposann: Deiliposinn er hentug lausn þar sem margir deila aðstöðu, búnaði og afgreiðslurými, til dæmis hárgreiðslustofur og fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu. Deiliposinn hentar einnig þegar einn aðili er með fjölbreyttan rekstur eða deildarskiptan en það getur meðal annars átt við um íþróttafélög. Hann er einfaldur í notkun, við afgreiðslu er viðkomandi seljandi valinn og viðskiptavinur greiðir með korti. Uppgjör eru aðskilin fyrir hvern og einn seljanda eða deild. Hægt er að kynna sér greiðslulausnina hér og fá samband við ráðgjafa sem finnur hentugustu lausnina. Tækni Mest lesið ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Segir stjórnendur ætla að skilja skuldirnar eftir á Íslandi Viðskipti innlent „Hef engar upplýsingar um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað“ Viðskipti innlent Samkaup eignast 38 prósenta hlut í Kjötkompaní Viðskipti innlent 208 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Viðskipti innlent Íþróttafræðin inn á vinnustaðinn: Yfirmenn ekki lengur alvitri einhyrningurinn Atvinnulíf Eiríkur Orri til Ofar Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku Viðskipti innlent Kaupfélagið á bak við risaviðskipti í Iceland Seafood Viðskipti innlent Fleiri fréttir KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Greiðsluáskorun BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Sjá meira
Deiliposinn er hentug lausn þar sem margir deila aðstöðu, búnaði og afgreiðslurými, til dæmis hárgreiðslustofur og fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu. Deiliposinn hentar einnig þegar einn aðili er með fjölbreyttan rekstur eða deildarskiptan en það getur meðal annars átt við um íþróttafélög. Hann er einfaldur í notkun, við afgreiðslu er viðkomandi seljandi valinn og viðskiptavinur greiðir með korti. Uppgjör eru aðskilin fyrir hvern og einn seljanda eða deild. Hægt er að kynna sér greiðslulausnina hér og fá samband við ráðgjafa sem finnur hentugustu lausnina.
Tækni Mest lesið ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Segir stjórnendur ætla að skilja skuldirnar eftir á Íslandi Viðskipti innlent „Hef engar upplýsingar um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað“ Viðskipti innlent Samkaup eignast 38 prósenta hlut í Kjötkompaní Viðskipti innlent 208 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Viðskipti innlent Íþróttafræðin inn á vinnustaðinn: Yfirmenn ekki lengur alvitri einhyrningurinn Atvinnulíf Eiríkur Orri til Ofar Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku Viðskipti innlent Kaupfélagið á bak við risaviðskipti í Iceland Seafood Viðskipti innlent Fleiri fréttir KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Greiðsluáskorun BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Sjá meira