Nýttu sér vesenið hjá Everton og stálu Danjuma Smári Jökull Jónsson skrifar 25. janúar 2023 18:16 Arnaut Danjuma er genginn til liðs við Tottenham. Vísir/Getty Arnaut Danjuma gekk í dag til liðs við Tottenham á láni frá spænska félaginu Villareal. Brotthvarf Frank Lampard frá Everton gerði það að verkum að félagið missti af leikmanninum.
Í byrjun vikunnar leit allt út fyrir að Arnaut Danjuma væri á leið til Everton og var Hollendingurinn búinn að gangast undir læknisskoðun hjá félaginu og aðeins átti eftir að ganga frá smáatriðum áður en félagaskiptin yrðu staðfest. Eftir að Everton tilkynnti að Frank Lampard, fyrrum knattspyrnustjóra liðsins, hefði verið sagt upp breyttust hlutirnir hins vegar töluvert. Tottenham Hotspur kom skyndilega inn í myndina og Danjuma var mættur til samningaviðræðna í London skömmu síðar. Introducing the latest member of the Spurs family... pic.twitter.com/atiRIBFRWO— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) January 25, 2023 Í dag tilkynnti síðan Tottenham að Danjuma væri genginn til liðs við félagið. Danjuma er ætlað að styrkja sóknarlínu Tottenham liðsins sem er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Tottenham er einnig komið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar þar sem liðið mætir AC Milan en Danjuma er gjaldgengur með Lundúnaliðinu í þeim leikjum. Forráðamenn Everton naga sig eflaust í handarbakið að hafa misst af Danjuma, sem leikið hefur sex leiki og skorað tvö mörk fyrir hollenska landsliðið. Danjuma hefur skorað tólf mörk í rúmlega þrjátíu leikjum fyrir Villareal en hann lék með Bournmouth árin 2019 til 2021 þar sem hann skoraði fimmtán mörk í 47 leikjum.
Enski boltinn Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira