Greint er frá þessum gleðitíðindum í Facebook hópnum Spottaði Diego, en hópurinn telur rúmlega tíu þúsund meðlimi og segja má að um aðdáendasíðu kisans sé að ræða.
Óhætt er að segja að Diego sé einn frægasti köttur landsins en hann er fastagestur í Hagkaup og A4 og sést einnig reglulega á Dominos og öðrum stöðum í Skeifunni.
Diego var til umfjöllunar í fréttum Stöðvar 2 á síðasta ári þar sem fram kom að fólk væri að gera sér sérstaka ferð í Skeifuna til að berja hann augum.
Í nóvember síðastliðnum varð Diego fyrir bíl og var fluttur á dýraspítala til aðhlynningar. Hann þurfti að gangast undir aðgerðir í kjölfarið og blésu aðdáendur hans því til söfnunar þar sem alls náðist að safna rúmlega 400 þúsund krónum. Hagkaup, A4 og Dominos og létu einnig fé renna til söfnunarinnar.

Nú virðist Diego vera allur að koma til og fyrr í kvöld birtu Gunný Eyborg Reynisdóttir og Abby Fennec myndir af kisanum ástsæla inni á fyrrnefndum Facebook hóp. Eins og sést hefur Diego komið sér makindalega fyrir á sínum samastað í A4 í Skeifunni.

Aðdáendur Diegó hafa beðið milli vonar og ótta og rignir nú inn athugasemdum þar sem endurkomu hans er fagnað.