Óvissustigi lýst yfir Árni Sæberg skrifar 4. febrúar 2023 20:55 Víðir Reynisson er yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs hjá ríkislögreglustjóra. Vísir/Vilhelm Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna í fyrrgreindum umdæmum, vegna veðurs sem er framundan.
Í tilkynningu frá almannavörnum segir að appelsínugul veðurviðvörun taki gildi klukkan 11 í fyrramálið Ströndum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra. „Vegfarendur eru beðnir um að vera ekki á ferðinni að óþörfu á því svæði þar sem veðrið er verst. Miklar líkur eru á að veðrið muni hafa áhrif á samgöngur og líkur á foktjóni eru verulegar,“ segir í tilkynningu. Samráðsfundur í fyrramálið Í tilkynningu segir að búið sé að boða til samráðsfundar almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra klukkan 11 í fyrramálið þar sem farið verður yfir stöðuna og viðbragð á þeim svæðum þar sem veðurspá er slæm. Einnig hafi verið ákveðið að virkja samhæfingarstöð almannavarna klukkan 10 í fyrramálið. Nauðsynlegt að festa lausamuni Í tilkynningunni segir að samkvæmt spá Veðurstofu Íslands sé von á sunnan stormi og miklu roki. Búast megi við mjög snörpum og varhugaverðum vindhviðum. „Varasamt verður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að vera á ferðinni og nauðsynlegt er að tryggja lausamuni til að fyrirbyggja foktjón. Fólki [er] bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám,“ segir í tilkynningunni. Að lokum er bent á að á vefnum umferdin.is sé hægt að fylgjast með rauntímaupplýsingum um færð á vegum og á vedur.is sé eins og alltaf hægt að fylgjast með veðrinu.
Veður Almannavarnir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira