Sunnan hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Atli Ísleifsson skrifar 13. febrúar 2023 07:13 Gular viðvaranir eru í gildi á Breiðafirði, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra og Miðhálendi í dag. Vísir/Vilhelm Landsmenn mega reikna með sunnan hvassviðri eða stormi í dag Rigning verður um sunnan- og vestanvert landið en yfirleitt þurrt norðan- og austanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að hiti verði víða á bilinu fimm til tíu stig. Það styttir upp að mestu vestantil undir kvöld. Gular viðvaranir eru í gildi á Breiðafirði, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og Miðhálendi í dag. Viðvaranirnar tóku gildi í nótt og gilda fram til klukkan 16 á Breiðafjarðarsvæðinu, til klukkan 17 á Vestfjörðum og Ströndum og klukkan 21 á Miðhálendinu, Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi. Spákortið fyrir klukkan 13 í dag.Veðurstofan Veðurstofan hefur sömuleiðis varað verið aukinni hættu á krapaflóðum og skriðum í dag og á morgun á sunnan-, suðaustan- og vestanverðu vegna úrkomunnar. „Lægir í nótt, suðvestanátt á morgun, víða 5-13 og dálítil él, en lengst af þurrt norðaustantil. Kólnar, hiti 0 til 6 stig, mildast suðaustanlands.“ Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Sunnan og suðvestan 5-13 m/s. Skúrir og síðar él, en þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 0 til 5 stig, en víða vægt frost um kvöldið. Á miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt 5-13 og dálítil snjókoma eða él, en hægari og úrkomulítið norðaustantil á landinu. Hiti um eða undir frostmarki. Á fimmtudag: Snýst í norðlæga átt með éljum norðanlands, en léttir til sunnan heiða. Frost 0 til 6 stig. Á föstudag: Vestlæg átt og él um landið vestanvert, en léttskýjað suðaustanlands. Frost 0 til 12 stig, kaldast inn til landsins. Á laugardag: Breytileg átt, víða þurrt og frost um mest allt land. Á sunnudag: Útlit fyrir vaxandi sunnanátt með vætu og hlýnandi veðri.
Veður Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Fleiri fréttir Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sjá meira