Ekkert lát á köldum norðlægum vindi Atli Ísleifsson skrifar 8. mars 2023 07:15 Reikna má með frosti á bilinu eitt til tólf stig þar sem kaldast verður inn til landsins. Vísir/Vilhelm Ekkert lát er á köldum norðlægum áttum og stefnir í mjög kalda daga yfir helgina, einkum inn til landsins.
Á vef Veðurstofunnar segir að éljagangurinn sé einkum bundinn við norðan- og austanvert landið, en lengri kaflar með björtu og sólríku veðri annars staðar. Reikna má með frosti á bilinu eitt til tólf stig þar sem kaldast verður inn til landsins. „Þegar loftmassinn yfir landinu er orðinn þetta kaldur, á hann erfitt að halda í mikinn raka og verður því úrkomumagnið ekki mikið. Eins breytist samsetning ískristallana sem gerir það að verkum að snjórinn bindst ílla saman og snjókornin eru smá. Þetta kallar skíðaáhugafólk gjarnan púðursjó. Eins er svona snjór mjög léttur og skefur mjög auðveldlega,“ segir í færslu veðurfræðingsins. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðlæg átt, 5-13 m/s og éljagangur norðan- og austanlands, en annars úrkomulítið. Frost 0 til 9 stig, minnst syðst. Á föstudag, laugardag og sunnudag: Áframhaldandi norðlægar áttir með éljum, en lengst af úrkomulaust og bjart veður syðra. Talsvert frost. Á mánudag og þriðjudag: Norðaustanátt með éljum, en bjartviðri suðvestanlands. Dregur heldur úr frosti.
Veður Mest lesið Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Innlent Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Innlent Telur áform ráðherra vanhugsuð Innlent Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ Innlent Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Erlent Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Innlent Bein útsending: Minningarathöfn Charlie Kirk Erlent Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Innlent Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Innlent Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Innlent Fleiri fréttir Grunn lægð yfir landinu í dag en suðlægir vindar á morgun Víða kaldi og allhvasst en lægir smám saman í dag Gular viðvaranir og svalri norðanátt beint til landsins Slydduél norðantil en þurrt og bjart sunnan heiða Kólnar í kvöld og allvíða næturfrost Kólnar þegar líður á vikuna Milt veður og víða væta Rigning með köflum víðast hvar Blautt víðast hvar Dálítil rigning og lægðir á sveimi Væta með köflum og dregur úr vindi Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Hvasst og samfelld rigning austast Má reikna með vatnavöxtum suðaustantil Rigning í dag Víðast hægur vindur og hiti að fimmtán stigum Rigning norðan- og austantil en bjart suðvestanlands Léttskýjað vestan- og sunnantil en blautara annars staðar Hiti að tuttugu stigum og hlýjast sunnantil Líkur á hellidembu, þrumum og eldingum suðvestantil Hlýtt og rakt loft yfir landinu Vindur á undanhaldi og hiti að tuttugu stigum Blæs hressilega af austri á landinu Gul viðvörun á Suðurlandi vegna hvassviðris Kröpp lægð stjórnar veðrinu næstu daga Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Litlar breytingar á hlaupi í Hvítá við Húsafell frá því í gær Skýjað, lítilsháttar væta og temmilega hlýtt Hiti að 21 stigi í dag Hiti að nítján stigum í dag en yfir tuttugu á morgun Sjá meira