Minnir á skákeinvígi Fischers og Spaskís: „Haraldur vann Musk með einum fingri“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 8. mars 2023 21:00 Ritdeilur Elon Musk og Haraldar Þorleifssonar minna einna helst á skákeinvígi Fischers og Spaskís að sögn ráðgjafa sem segir Harald hafa unnið næst ríkasta mann heims með einum fingri í gær.
Atburðarrás síðasta sólarhrings var hin furðulegasta en hún hófst þegar Haraldur spurði Musk hvort hann væri enn starfsmaður Twitter eftir að aðgangi hans að öllum kerfum fyrirtækisins var lokað án skýringa. Musk svaraði færslunni, gerði ítrekað lítið úr Haraldi og gerði fötlun hans að umræðuefni á lágkúrulegan hátt. Ritdeilurnar sem vöktu heimsathygli tóku óvænta stefnu í gærkvöld þegar þegar Musk bað Harald opinberlega afsökunar. Karen Kjartansdóttir, ráðgjafi lýsir deilunum sem einu mest spennandi einvígi í áraraðir. „Af því að ég man sirka eftir Spassky og Fischer. Að minnsta kosti finnst mér maður muna eftir þessu. Þannig þetta var svona stóra einvígið og ekki amalegt að hafa jafn frambærilegan Íslending og Harald í þessari keppni sem vann Musk með einum fingri,“ segir Karen sem er ráðgjafi hjá Langbrók ráðgjöf. Musk sagði að ástæða útreiðarinnar byggði á misskilningi og að þeir hefðu útkljáð málin í myndsímtali. Haraldur væri meira að segja að íhuga að koma aftur til starfa hjá félaginu. Þá sagði Musk að betra væri að tala saman en að tísta. „Og það er kannski stóri sannleikurinn sem var dreginn fram í þessu skemmtilega máli, að eigandi Twitter komi fram og segi að það sé betra að tala hreint út við fólk heldur en að vera að tísta.“ Haraldur hefur ekki viljað veita innlendum fjölmiðlum viðtöl vegna málsins en þegar fréttastofa spurði hann hvort hann ætlaði að vera áfram hjá Twitter svaraði hann með þessum hér: Fréttamaður leggur það í hendur lesenda Vísis að túlka þetta svar.getty Karen segir að deilurnar hafi sýnt ógeðfellda hlið á Musk, þessum valdamikla manni. „Þannig það var óhemju gleðilegt að sjá Musk biðjast afsökunar og hreinlega tapa þessum slag. Maður verður að virða afsökunarbeiðnina, hún er mjög mikilvæg.“ Greint hefur verið frá því að Haraldur sé mögulega í hópi starfsmanna sem erfitt geti reynst að segja upp vegna samkomulags hans við félagið. Karen segir að skaðabótalögmenn Bandaríkjanna hafi því ábyggilega flestir staðið á öndinni í gær og að ákvörðun um afsökunarbeiðni sé klók og byggi eflaust á fjárhagslegum sjónarmiðum. „Ég held að enginn geti sagt Musk hvað hann eigi að gera. Ég held að Musk hafi dregið þá ályktun að það væri fjárhagslega hagkvæmt að tala við Harald og biðjast afsökunar.“ „Við erum kát þetta er gleðilegur sigur.“
Twitter Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Musk biður Harald afsökunar Auðjöfurinn og eigandi Twitter, Elon Musk, bað Harald Þorleifsson, frumkvöðul og fyrrverandi og mögulega áframhaldandi starfsmann Twitter afsökunar í kvöld. Það er eftir miklar og áberandi deilur þeirra á Twitter í dag og í kvöld. 8. mars 2023 00:23 Musk eyddi tísti um að Haraldur væri „sá versti“ Auðjöfurinn og eigandi Twitter, Elon Musk, eyddi fyrr í dag tísti þar sem hann segir Harald Þorleifsson, frumkvöðul og fyrrum starfsmann Twitter, „þann versta“. 7. mars 2023 21:42 Fylgjendatölur Haraldar rjúka upp Á síðasta sólarhring hefur Haraldur Þorleifsson, frumkvöðull og fyrrum starfsmaður Twitter, bætt við sig rúmlega 70 þúsund fylgjendum á samfélagsmiðlinum. 7. mars 2023 20:48 Elon Musk hafi stigið í taktíska gildru Haraldar Almannatengill og æskuvinur Haraldar Þorleifssonar, stofnanda Ueno og fyrrum starfsmanns Twitter, segir að Elon Musk, eigandi Twitter, hafi gengið í gildru með því að svara færslum Haraldar. 7. mars 2023 17:13 Haraldur svarar ásökunum Musk fullum hálsi Ekki sér fyrir endann á ritdeilum milli Elon Musk, eiganda Twitter, og Haralds Þorleifssonar, stofnanda Ueno og fyrrverandi starfsmanns Twitter sem hófust í nótt. Haraldur hefur útskýrt vöðvarýrnun sem hann glímir við fyrir Musk og spyr hvort hann ætli ekki örugglega að gera upp skuld sína gagnvart Haraldi. 7. mars 2023 13:39 Mest lesið „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Erlent Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Innlent Fasteignamat lækkar að raunvirði Innlent Fleiri fréttir Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Bein útsending: Lyklaskipti í borginni Horfði á gamla fundi til að undirbúa sig Sjá meira
Musk biður Harald afsökunar Auðjöfurinn og eigandi Twitter, Elon Musk, bað Harald Þorleifsson, frumkvöðul og fyrrverandi og mögulega áframhaldandi starfsmann Twitter afsökunar í kvöld. Það er eftir miklar og áberandi deilur þeirra á Twitter í dag og í kvöld. 8. mars 2023 00:23
Musk eyddi tísti um að Haraldur væri „sá versti“ Auðjöfurinn og eigandi Twitter, Elon Musk, eyddi fyrr í dag tísti þar sem hann segir Harald Þorleifsson, frumkvöðul og fyrrum starfsmann Twitter, „þann versta“. 7. mars 2023 21:42
Fylgjendatölur Haraldar rjúka upp Á síðasta sólarhring hefur Haraldur Þorleifsson, frumkvöðull og fyrrum starfsmaður Twitter, bætt við sig rúmlega 70 þúsund fylgjendum á samfélagsmiðlinum. 7. mars 2023 20:48
Elon Musk hafi stigið í taktíska gildru Haraldar Almannatengill og æskuvinur Haraldar Þorleifssonar, stofnanda Ueno og fyrrum starfsmanns Twitter, segir að Elon Musk, eigandi Twitter, hafi gengið í gildru með því að svara færslum Haraldar. 7. mars 2023 17:13
Haraldur svarar ásökunum Musk fullum hálsi Ekki sér fyrir endann á ritdeilum milli Elon Musk, eiganda Twitter, og Haralds Þorleifssonar, stofnanda Ueno og fyrrverandi starfsmanns Twitter sem hófust í nótt. Haraldur hefur útskýrt vöðvarýrnun sem hann glímir við fyrir Musk og spyr hvort hann ætli ekki örugglega að gera upp skuld sína gagnvart Haraldi. 7. mars 2023 13:39