„Við fengum yfir 130 lög í keppnina. Það er ótrúlega mikið í gangi í íslensku tónlistarlífi og greinilega af nógu að taka. Lögin eru líka svo fjölbreytt, popp, rokk dansútgáfur og margir eru að bæta við lagið, sem er mjög skemmtilegt,“ segir Hafþór Úlfarsson, deildarstjóri í markaðsdeild SS en hann situr í dómnefnd ásamt Sölku Valsdóttur tónlistarkonu og Árna Beinteini Árnasyni leikara.

Þeirra bíður því erfitt verk. Aðeins fimm lög komast áfram í úrslit og verða bæði lögin og höfundar þeirra kynnt í Skúrnum, sérstakri þáttaseríu Kristjáns Kristjánssonar leikstjóra, sem sýnd verður hér á Vísi. Hver þáttur verður tileinkaður einum listamanni eða hljómsveit og farið yfir hvernig lagið þeirra varð til.

Auk þess að semja og senda inn nýja útgáfu af SS-pylsulaginu átti að senda inn frumsamið lag og eru vegleg verðlaun í boði fyrir bestu lögin. Tvær milljónir króna eru í verðlaun fyrir besta útgáfuna af SS pylsu-laginu, ein milljón króna fyrir annað sætið og fimmhundruð þúsund fyrir þriðja sætið. Fyrir besta frumsamda lagið er ein milljón króna í verðlaun.
Hafþór er hæstánægður með lagafjöldann. „Við vissum ekki hvernig viðbrögð við myndum fá um nýja útgáfu, þetta er lag sem hefur verið lengi í gangi og fólk þekkir vel. Við gerðum reyndar nýja útgáfu af laginu fyrir tveimur árum síðan sem fékk frábærar viðtökur svo við ákváðum að prófa núna að leyfa hverjum sem er að senda inn. Það má vel vera að Skúrinn verði að árlegum viðburði, við fengum í það minnsta nokkra tölvupósta þar sem stungið var upp á því,“ segir Hafþór.