Innlent

Kallar Eddu „of­beldis­blaða­mann“ og sakar hana um rit­stuld

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Eva sakar Eddu um ritstuld.
Eva sakar Eddu um ritstuld.

Eva Hauksdóttir lögmaður kallar Eddu Falak, hlaðvarpsstjórnanda og blaðamann Heimildarinnar, „ofbeldisblaðamann“ í aðsendri grein sem birtist á Vísi í morgun og sakar hana jafnframt um ritstuld.

Í greininni gengst Eva við því að hafa sent Heimildinni „beiðni“ fyrir hönd Frosta Logasonar um aðgang að textasamskiptum milli hans og fyrrverandi kærustu hans, sem byggt var á í umfjöllun Eddu um samskipti þeirra á milli.

Eva ítrekar að um „beiðni“ hafi verið að ræða, ekki „kröfu“, líkt og forsvarsmenn Heimildarinnar, sem hún kallar „grenjuskóður“, hafi haldið fram. Vísar hún þar til viðtals mbl.is við Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur, annars ritstjóra Heimildarinnar, þar sem Ingibjörg sagði meðal annars:

„Það sem gerðist hérna er að maður sem á harma að hefna gagn­vart Eddu Falak og Heim­ild­inni, og hef­ur ráðið lög­mann til að beita sér gegn Heim­ild­inni, set­ur fram alls kon­ar ásak­an­ir á hend­ur Eddu Falak og kall­ar hana per­sónu­leik­araskaða. Þetta er þessi and­stæða við MeT­oo sem er að birt­ast.“

„Nú er komið á daginn að ofbeldisblaðamaður Heimildarinnar, er ekki aðeins lygalaupur heldur ritþjófur líka,“ heldur Eva svo áfram. „Meistararitgerð baráttukonunnar sem ekki þurfti að velja á milli virtrar stöðu í fjármálageiranum og kroppamynda á Instagram er reyndar ekki bein afritun. Hún er þó sláandi lík ritgerð annars Íslendings sem útskrifaðist frá sama skóla nokkrum árum fyrr bæði hvað varðar efnistök og byggingu, auk þess sem orðalagið er víða mjög svipað.“

Bendir Eva á nokkur dæmi og segir um ritstuld að ræða. Hann sé ekki tilkominn vegna vankunnáttu hvað varðar meðferð heimilda heldur hafi Edda reynt að hylja slóð sína, meðal annars með því að geta ekki fyrirmyndarinnar.

„Það verður áhugavert að sjá hvaða veigrunarorð Heimildin mun nota til sannleiksförðunar í þetta sinn. Hvernig getum við látið ritstuld hljóma sem eitthvað svona alltílæ? Eigum við að kalla þetta höfundaskörun? Ritnám? Heimildaóreiðu? Eða er ritstuldurinn kannski bara stúdentasprell, einhver svona sniðugheit sem eingöngu hinum rétthugsandi líðast, líkt og brandari blaðamannsins um að gera Gunnar Nelson út af örkinni til að afgreiða þá sem gagnrýna hana? Ég leyfi mér að efast um að sú fyndni þætti umberanleg af hálfu einhvers sem ekki tilheyrir feminísku rétttrúnaðarkirkjunni,“ segir Eva.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×