Smith, Terry og Shakespeare eiga að bjarga Leicester Smári Jökull Jónsson skrifar 10. apríl 2023 19:17 Dean Smith hefur áður stýrt liðum Walsall, Brentford, Norwich og Aston Villa. Vísir/Getty Dean Smith hefur verið ráðinn þjálfari Leicester í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu út þetta tímabil. Leicester situr í næst neðsta sæti deildarinnar og framundan hörð fallbarátta.
Brendan Rodgers var sagt upp hjá Leicester fyrir skömmu og liðið verið í þjálfaraleit síðan þá. Lengi vel leit út fyrir að Jessie Marsch tæki við en hann gaf forráðamönnum Leicester afsvar í gær. Nú hefur hins vegar verið tilkynnt að Dean Smith, fyrrum þjálfari Aston Villa, taki við Leicester út tímabilið með þá John Terry og Craig Shakespeare sér til aðstoðar. Dean Smith var rekinn frá Aston Villa í nóvember árið 2021 og tók strax í kjölfarið við Norwich. Hann var síðan rekinn þaðan í desember síðastliðnum og hefur verið án starfs síðan þá. Fyrrum landsliðsmaðurinn John Terry verður Smith til aðstoðar en hann var síðast í þjálfarateymi Smith hjá Aston Villa og hefur verið í starfi hjá sínu gamla félagi Chelsea að undanförnu. Þá verður Craig Shakespeare einnig í þjálfarateymi Leicester en hann hefur áður verið knattspyrnustjóri liðsins og var aðstoðarmaður Claudio Ranieri þegar Leicester varð Englandsmeistari. Samningur Leicester og Smith er út þetta tímabil er liðið er í nítjánda og næst neðsta sæti deildarinnar, tveimur stigum frá öruggu sæti. Leicester tapaði gegn Bournemouth á laugardag en mætir Englandsmeisturum Manchester City um næstu helgi.
Enski boltinn Mest lesið Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Enski boltinn Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn Dagskráin í dag: Verður markamet efstu deildar karla bætt? Sport „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Fleiri fréttir Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Sjá meira