Norðlæg átt í dag og hvessir í nótt Atli Ísleifsson skrifar 28. apríl 2023 07:11 Hiti verður á bilinu núll til sex stig að deginum. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag þar sem víða verða þrír til tíu metrar á sekúndu. Það verður skýjað og dálítil snjókoma suðvestanlands en léttir til eftir hádegi. Stöku él norðaustantil en annars bjart að mestu.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði hiti núll til sex stig að deginum þar sem verður svalast norðaustantil og á Vestfjörðum. „Hvessir aðeins í nótt, norðlæg átt 5-13 m/s á morgun, en 10-15 m/s austast á landinu. Bjart veður um allt land en líkur á smáskúrum á Suðausturlandi eftir hádegi. Hiti breytist lítið. Svipað veður verður á sunnudag en þykknar upp norðaustanlands eftir hádegi með dálitlum éljum um kvöldið. Hiti 2 til 6 stig en nálægt frostmarki á norðanverðu landinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðlæg átt 5-13 m/s og bjartviðri, en austlægari sunnanlands, skýjað og dálítil væta. Frost 0 til 5 stig, en hiti rétt yfir frostmarki að deginum sunnantil. Á sunnudag: Norðlæg átt, víða 8-13 og bjartviðri, en þykknar upp með dálítilli snjókomu á norðanverðu landinu um kvöldið. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Norðlæg átt 3-10 en 8-13 austast. Lítilsháttar él á Norður- og Austurlandi og vægt frost, en þurrt sunnan heiða með hita að 5 stigum yfir daginn. Á þriðjudag: Fremur hæg breytileg átt og yfirleitt bjart en sums staðar skýjað við suður- og austurströndina. Hiti 2 til 7 stig en um frostmark norðaustanlands. Á miðvikudag: Hæg breytileg átt og skýjað að mestu en bjart norðaustantil. Suðaustanátt með dálítilli rigningu suðvestast á landinu um kvöldið. Hiti 0 til 6 stig, svalast á Austfjörðum. Á fimmtudag: Útlit fyrir suðaustanátt með rigningu um vestanvert landið en hægari og þurrt fyrir austan. Hiti 3 til 8 stig.
Veður Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Fleiri fréttir Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Hlýjast sunnan heiða og hiti allt að átján stigum Sjá meira