Talsverð rigning á landinu og hiti að sautján stigum norðaustanlands Atli Ísleifsson skrifar 12. maí 2023 07:09 Loftmassinn yfir landinu er ágætlega hlýr og má búast við vænum hitatölum í hnjúkaþey á norðaustanverðu landinu, sextán til sautján stig þegar best lætur. Vísir/Vilhelm Lægð er nú stödd við Hvarf og bárust skil frá henni yfir landið seint í gær sem skilar sér í aukinni rigningu í nótt og framan af degi í dag. Búast má við talsverðri rigningu á sunnanverðu landinu og fylgir með sunnan strekkingur, þó reyndar hafi lægt vestast á landinu.
Á vef Veðurstofunnar segir að skilin færist til austurs og á eftir skilunum taki við suðvestan gola eða kaldi með skúrum. „Þessi veðraskipti gerast fyrst vestast á landinu, en austanlands dregur úr vindi og léttir til undir kvöldið. Loftmassinn yfir landinu er ágætlega hlýr og má búast við vænum hitatölum í hnjúkaþey á norðaustanverðu landinu, 16-17 stig þegar best lætur.Á morgun nálgast síðan lægð beint úr suðri og það gengur í austan og norðaustan 5-13 á með rigningu, fyrst um landið sunnanvert. Hiti 6 til 12 stig. Spár gera síðan ráð fyrir að miðja þessara lægðar gangi til norðurs yfir austanvert landið. Það þýðir að á sunnudaginn snýst í norðlægari átt með úrkomu og kólnar í veðri,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 11 í dag. Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Gengur í austan og norðaustan 5-13 m/s með rigningu, fyrst um landið sunnanvert. Hiti 6 til 12 stig. Á sunnudag: Norðvestan og vestan 8-15. Víða rigning eða slydda, en þurrt að kalla Suður- og Vesturlandi seinnipartinn. Snjókoma á heiðum á norðanverðu landinu. Kólnandi veður. Á mánudag: Norðlæg eða breytileg átt og víða slydda eða snjókoma um tíma, en rigning sunnanlands. Vægt frost á norðanverðu landinu, en hiti 1 til 6 stig sunnantil að deginum. Á þriðjudag: Vaxandi sunnanátt, þykknar upp og fer að rigna, en bjartviðri norðaustan- og austanlands. Hlýnandi veður. Á miðvikudag: Sunnan- og suðvestanátt með súld eða rigningu, en þurrt og bjart á norðaustanverðu landinu. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Austurlandi. Á fimmtudag (uppstigningardagur): Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 7 til 13 stig.
Veður Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira